Handbolti

Aron verður heldur ekki með í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson hefur verið með íslenska landsliðinu í þessum glugga en gat spilað hvorugan leikinn vegna meiðsla. Hér má sjá Aron á æfingu liðsins úti í Grikklandi.
Aron Pálmarsson hefur verið með íslenska landsliðinu í þessum glugga en gat spilað hvorugan leikinn vegna meiðsla. Hér má sjá Aron á æfingu liðsins úti í Grikklandi. @hsi_iceland

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur tilkynnt hvaða leikmenn mæta Grikkjum í Laugardalshöllinni í dag.

Íslenska landsliðið tryggir sig inn á Evrópumótið með sigri en þetta yrði þá fjórtánda Evrópumótið í röð hjá strákunum okkar.

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson missti af leiknum í Grikklandi í vikunni og hann er líka utan hóps í dag vegna meiðsla.

Það verða því sömu sextán leikmenn sem spila þennan leik og í níu marka sigrinum út í Grikklandi.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 og verður fylgst vel með honum hér á Vísi.

Leikmannahópur Íslands í dag:

Markverðir:

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (282/26)

Ísak Steinsson, Dramen (1/0)

Aðrir leikmenn:

Andri Rúnarsson, Leipzig (3/1)

Arnór Snær Óskarsson, Kolstad (3/0)

Benedikt Gunnar Óskarss, Kolstad (4/1)

Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (20/6)

Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (59/128)

Haukur Þrastarsson, Dinamo Bucaresti (42/59)

Janus Daði Smárason, Pick Szeged (95/166)

Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg (34/67)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (51/153)

Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (25/75)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (84/227)

Stiven Tobar Valencia, Benfica (19/20)

Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (14/23)

Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (101/45)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×