Erlent

Fleiri hundruð ó­breyttra borgara drepnir

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Liðar úr öryggissveit sýrlensku ríkisstjórnarinnar.
Liðar úr öryggissveit sýrlensku ríkisstjórnarinnar. EPA

Öryggissveitir nýrra stjórnvalda í Sýrlandi eru sagðar hafa drepið minnst 745 óbreytta borgara í um það bil þrjátíu fjöldaaftökum í vesturhluta landsins. Umfangsmikil átök hafa átt sér stað milli uppreisnarmanna úr röðum Alavíta og stjórnvalda í Latakía- og Tartushéruðum í vestanverðu Sýrlandi undanfarna daga.

Tölurnar eru fengnar frá mannréttindaráði um málefni Sýrlands, sem starfa frá Bretlandi.

BBC hefur eftir þeim að fleiri hundruðir manna hafi flúið heimili sín á svæðinu, þar sem Alavítar eru í meirihluta. Alavítar eru valdamikill trúarhópur múslima sem Assad fyrrverandi forseti tilheyrir, en þeir eru um 10 prósent þjóðarinnar. Alavítar eru shía- múslimar, en mikill meirihluti Sýrlendinga err Súnní - múslimar.

Sjá einnig: Mannskæð átök í Sýrlandi

Fleiri en þúsund látnir í átökunum

Rúmlega þúsund manns hafa týnt lífinu í átökunum undanfarna daga, og eru átökin þau mannskæðustu síðan uppreisnarmenn steyptu Assad af stóli í desember.

Tugir fyrrverandi hermanna úr ríkisstjórn Assads eru látnir, 125 úr öryggissveitum nýrra stjórnvalda, og 148 uppreisnarmenn úr röðum Alavíta.

Talsmaður varnarmálaráðuneytis Sýrlands segir að ríkisstjórnin hafi endurheimt stjórn yfir landsvæðinu, eftir ósvífnar árásir Alavíta gegn öryggissveitum ríkisstjórnarinnar.


Tengdar fréttir

Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum

Ahmed al-Sharaa, sem gekk lengi undir nafninu Abu Mohammed al-Jolani, hefur tekið sér hlutverk starfandi forseta Sýrlands. Þá hafa uppreisnarleiðtogar í landinu samþykkt að leysa uppreisnarhópa sína upp og stofna sameinaðan sýrlenskan her.

Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré

Hundruðir mótmælenda marséruðu um kristin hverfi Damaskusborgar í Sýrlandi í dag til að mótmæla því að jólatré hafi verið brennt í norðanverðu landinu. Mótmælendur krefjast þess að ný ríkisstjórn standi vörð um réttindi kristinna og annarra minnihlutatrúarhópa.

Vara við upprisu ISIS

Leiðtogar regnhlífarsamtakanna Syrian democratic forces í Sýrlandi, sem er að mestu stýrt af sýrlenskum Kúrdum, hafa varað við því að vígamenn íslamska ríkisins séu tilbúnir til að láta að sér kveða aftur. Upprisa þeirra sé í raun þegar hafin og umsvif ISIS í eyðimörkinni milli Sýrlands og Írak hafi aukist frá falli Assad-stjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×