Fótbolti

Gæti fengið bann sem gildir um allan heim

Sindri Sverrisson skrifar
Paulo Fonseca fór með enni sitt í enni dómarans Benoit Millot og hellti sér yfir hann.
Paulo Fonseca fór með enni sitt í enni dómarans Benoit Millot og hellti sér yfir hann. AFP/JEFF PACHOUD

Paulo Fonseca, hinn portúgalski þjálfari Lyon í Frakklandi, er í vondum málum eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu og ógnað dómara leiks við Brest um helgina.

Fonseca brjálaðist þegar vítaspyrna var dæmd á Lyon og fékk rautt spjald. Þegar dómarinn sýndi honum rauða spjaldið labbaði hann með ógnandi hætti að dómaranum, hellti úr skálum reiði sinnar og setti enni sitt alveg að enni dómarans. Um tíma virtist Fonseca hreinlega ætla að skalla dómarann.

Málið hefur valdið hneykslan í Frakklandi og kallað hefur verið eftir því að Fonseca hljóti þunga refsingu.

Samkvæmt reglum franska knattspyrnusambandsins gæti hann fengið sjö mánaða bann. „Þessi hegðun er algjörlega óviðunandi,“ sagði Marie Barsacq, ráðherra íþróttamála í Frakklandi.

Ver sig á hóteli í Búkarest

Franski miðillinn L'Equipe segir að líklega muni franska sambandið leitast eftir því hjá FIFA að bannið verði alþjóðlegt og gildi því í öllum keppnum. Segir miðillinn að FIFA samþykki jafnan slíkar beiðnir, líkt og í tilviki Sandro Tonali sem var dæmdur á Ítalíu vegna veðmála en var þá orðinn leikmaður Newcastle á Englandi.

Næsti leikur Lyon er einmitt í Evrópudeildinni, gegn FCSB í Rúmeníu á fimmtudaginn.

L'Equipe segir að á morgun, daginn fyrir leik, muni aganefnd hlýða á vitnisburð Fonseca frá hóteli í Búkarest þar sem hann muni freista þess að sannfæra nefndina um að dæma hann ekki í langt bann.

Búið spil út af banni?

Christophe Dugarry, álitsgjafi RMC og fyrrverandi landsliðsmaður Frakka, segir framtíð Fonseca hjá Lyon í algjörri óvissu.

„Hvernig er það hægt, eftir að hafa veitt honum traust, að halda honum ef hann fær sjö mánaða bann? Hvernig er hægt að halda þjálfara sem hefur skapað svona slæma ímynd?“ spurði Dugarry.

Fonseca, sem tók við Lyon fyrir aðeins rúmum mánuði síðan, hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og ítrekað afsökunarbeiðni sína í bréfi til frönsku dómarasamtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×