Skoðun

For­ysta til fram­tíðar

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Við sjálfstæðismenn höfum fengið nýjan formann. Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sigraði í formannskjöri flokksins sem fram fór í gær og er fyrst kvenna formaður hans. Kosningin var æsispennandi og mátti heyra saumnál detta þegar Birgir Ármannsson fundarstjóri tilkynnti úrslitin. Guðrún hlaut 50,11% atkvæða. Niðurstöðurnar eru afdráttarlausar en á sama tíma er ljóst að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir getur mjög vel við unað.

Hvað úrslitin varðar að öðru leyti er þetta ekki í fyrsta skipti sem mjótt er á mununum í formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum. Hið sama var til dæmis uppi á teningnum þegar Davíð Oddsson sigraði Þorstein Pálsson á landsfundinum 1991. Davíð hlaut þá 52,8% og Þorsteinn 46,9%. Þorsteinn var vissulega sitjandi formaður en á sama tíma mjög veikur formaður. Davíð var nýr í landsmálunum en Þorsteinn með langa reynslu. Sem sagt óneitanlega ákveðin líkindi.

Við sjálfstæðismenn búum annars afskaplega vel að hafa getað valið á milli tveggja öflugra frambjóðenda í formannsstól Sjálfstæðisflokksins. Má til dæmis rifja upp í því sambandi að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var ein í framboði þegar hún var kjörin formaður Samfylkingarinnar haustið 2022. Verkefnið framundan er að sækja fram á við með samtaka mætti, auka fylgi Sjálfstæðisflokksins og gera hann aftur að forystuaflinu í íslenzkum stjórnmálum.

Hvað mig sjálfan varðar langar mig að þakka öllum þeim sem greiddu mér atkvæði sitt á landsfundinum og tryggðu mér þar með sæti í utanríkismálanefnd Sjálfstæðisflokksins sem starfa mun fram að næsta landsfundi. Ég hlaut samtals 434 atkvæði og næstflest af þeim sem náðu kjöri í nefndina.

Mig langar að sama skapi að þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfstæðismönnum sem komu að máli við mig á landsfundinum og þökkuðu mér fyrir pistlaskrifin mín á Stjórnmálin.is. Þar á meðal nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að öðrum ólöstuðum. Mér þótti afskaplega vænt um það. Þá langar mig síðast en ekki sízt að þakka öllum sem fylgjast með síðunni en fjöldi gesta er að jafnaði á bilinu 300-400 á degi hverjum. Ég kann þeim öllum miklar þakkir fyrir það.

Til gamans má geta þess að gestum vefsíðunnar fækkaði nokkuð yfir helgina en fjölgaði síðan aftur eftir að landsfundinum lauk. Draga má þá ályktun af því, sem og þeim mörgu sem þökkuðu mér skrifin á fundinum, að ófáir dyggir lesendur síðunnar hafi verið í röðum landsfundarfulltrúa sem aftur þarf ekki endilega að koma mjög á óvart.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál) og heldur úti vefnum Stjórnmálin.is.




Skoðun

Skoðun

Plastflóðið

Emily Jaimes Richey-Stavrand,Johanna Franke,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar

Sjá meira


×