Álagning á áfengi mest á Íslandi Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar 1. mars 2025 06:01 Skattar á áfengi er óskilvirk leið til að draga úr skaðlegri neyslu á vörunni samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs. visir/Vilhelm Álagning á áfengi er mest á Íslandi miðað við Norðurlöndin og ríki Evrópusambandsins. Þetta sýnir ný úttekt viðskiptaráðs sem hvetur ríkið til að láta af óhóflegri skattlagningu á áfengi. Ráðið telur slíka neyslustýringu koma verst niður á þeim sem misnota áfengi og að tímabært sé að leggja ÁTVR niður.
36 ár frá því að bjórinn var leyfður Samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs á álögum ríkisins á bjór tekur ríkið tvo þriðju af söluverði. Áfengis- og skilagjald er 43 prósent, virðisaukaskattur 10 prósent og álagning ÁTVR 14 prósent. Álögur reiknast í hlutfalli við rúmmál vínandi í drykkjum. Árið 1989 var bjórinn leyfður á Íslandi eftir að hafa verið bannaður í 74 ár. Enn tekur hið opinbera til sín tvo þriðju af söluverði mjöðsins í formi opinberra gjalda, skatta og álagningar þrátt fyrir að 36 ár séu liðin frá því að banninu var aflétt. Vegna þessa er áfengisverð á Íslandi það hæsta á Norðurlöndum. Samkvæmt útreikningum Viðskiptaráðs mynd bjór án álagna ríkisins kosta 125 krónur en kostar í staðinn 379 krónur. Eftir því sem áfengið verður sterkara hækkar hlutfall ríkisins af söluverði en af léttvínsflösku er hlutur ríkisins 70% og af sterku víni tekur ríkið 90% af söluverði. Áfengisgjald ríkisins reiknast út frá rúmmáli vínanda í drykkjum. Viðskiptaráð Af opinberum gjöldum er áfengisgjaldið þyngst og hlutfall ríkisins hæst á sterku áfengi. Reiknast það út frá rúmmáli vínanda í drykkjum sem útskýrir mismunandi álagningu á bjór, léttvíni og sterku áfengi. Þá leggst skilagjald á umbúðir og virðisaukaskattur sem hækkar einnig verðið auk álagningar ÁTVR á áfengi í verslunum þeirra. „Álagningin er lögbundin og nemur 18% á vörur sem innihalda 22% vínanda eða minna og 12% á vörur sem innihalda meiri vínanda en það“. Munur á álagningu á áfengum og óáfengum drykkjum Samkvæmt úttektinni er meðalverð á óáfengum drykkjum aðeins 40 prósent hærra á Íslandi miðað við lönd í Evrópusambandinu. Á áfengum drykkjum er meðalverðið þrefalt og er skattlagningin hérlendis fimmfalt hærri en tíðkast innan Evrópusambandsins. Þá kemur einnig fram að meðalneysla áfengis á Íslandi hefur aukist undanfarin ár ólíkt öðrum Norðurlöndum. Ofdrykkja sé einnig mest hér af Norðurlöndunum og með því mesta sem tíðkist í Evrópu. Há skattlagning og opinber gjöld valda því að allt að 90% af söluverði renni til ríkisins. Viðskiptaráð Vilja leggja ÁTVR niður „Skattar á áfengi gera ekki greinarmun á þeim sem nota vöruna með ábyrgum hætti og þeim sem misnota hana. Óhófleg skattlagning er því óskilvirk leið til að draga úr misnotkun áfengis, þar sem að verðbreytingar hafa minnst áhrif á neyslu þeirra sem misnota vöruna. Skattlagning á áfengi er því fyrst og fremst tekjuöflunartæki en ekki lýðheilsutæki“. Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að láta af óhóflegri skattlagningu á áfengi. Þá leggja þau til að ÁTVR verði lagt niður og að einokunarverslun ríkisins með áfengi verði hætt. „Ríkiseinokunarsala er tímaskekkja sem fer illa með almannafé og þjónar ekki hagsmunum neytenda“.
Áfengi Neytendur Tengdar fréttir Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Ívar Jónsson Arndal forstjóri ÁTVR sækist ekki eftir endurráðningu og lætur af störfum þann 1. september. Hann hefur verið forstjóri í tuttugu ár og starfað hjá stofnuninni frá 1990. Ívar verður 67 ára í maí. 27. febrúar 2025 17:13 ÁTVR hafi haldið dýrari og sterkari bjór að neytendum Lögmaður innflutningsfyrirtækisins Dista, sem lagði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í Hæstarétti á dögunum, segir ÁTVR hafa haldið dýrari og mögulega sterkari vörum að neytendum með ólögmætum viðmiðum um hvað rataði í hillur verslunarinnar og hvað ekki. Hann gerir ráð fyrir að Ríkið sé bótaskylt gagnvart umbjóðanda sínum. 6. desember 2024 08:37 Mest lesið Álagning á áfengi mest á Íslandi Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Stefna á Coda stöð við Húsavík Viðskipti innlent Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Viðskipti innlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Viðskipti innlent Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Álagning á áfengi mest á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Sjá meira
Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Ívar Jónsson Arndal forstjóri ÁTVR sækist ekki eftir endurráðningu og lætur af störfum þann 1. september. Hann hefur verið forstjóri í tuttugu ár og starfað hjá stofnuninni frá 1990. Ívar verður 67 ára í maí. 27. febrúar 2025 17:13
ÁTVR hafi haldið dýrari og sterkari bjór að neytendum Lögmaður innflutningsfyrirtækisins Dista, sem lagði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í Hæstarétti á dögunum, segir ÁTVR hafa haldið dýrari og mögulega sterkari vörum að neytendum með ólögmætum viðmiðum um hvað rataði í hillur verslunarinnar og hvað ekki. Hann gerir ráð fyrir að Ríkið sé bótaskylt gagnvart umbjóðanda sínum. 6. desember 2024 08:37