Leik lokið: Grindavík - Álftanes 92-94 | Dúi hetjan í fjarveru NBA mannsins Andri Már Eggertsson skrifar 12. febrúar 2025 21:25 vísir/Jón Gautur Álftnesningar mættu án NBA leikmannsins síns í Smárann í kvöld en unnu samt dramatískan tveggja stiga sigur á Grindvíkingum á þeirra heimavelli, 94-92. Álftanesliðið hefur nú unnið fjóra leiki í röð í Bónus deild karla í körfubolta. Þetta átti að vera slagur milli NBA leikmanna en aðeins NBA maður Grindvíkinga mætti til leiks. Pargo var magnaður með 39 stig en klikkaði á lokaskoti leiksins. Álftanes komst mest nítján stigum yfir í fyrri hálfleiknum en Grindavík vann sig inn í leikinn. Í lokin var allt undir en Dúi Þór Jónsson skoraði sigurkörfuna. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Álftanes