Innlent

Fundað um launa­kjör í Karphúsi og meirihlutamyndun í borginni

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum fjöllum við um kennaradeiluna en nú fyrir hádegi hófst fundur í Karphúsinu. 

Þar voru framhaldsskólakennarar mættir en að óbreyttu hefjast verkföll í nokkrum menntaskólum í næstu viku.

Einnig fylgjumst við áfram með meirihlutamyndun í Reykjavík þar sem fimm flokkar reyna nú að ná saman um nýja stjórn í borginni. 

Einnig heyrum við í eldfjallafræðingi en nú er talið að gos gæti hafist á Reykjannesi nær hvenær sem er, við heyrum hans álit á stöðunni.

Í íþróttum  verður farið yfir leikina í Meistaradeildinni í gær og hitað upp fyrir leiki kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×