Erlent

Myrti sjö konur og þrjá karla

Samúel Karl Ólason skrifar
Þrjár byssur fundust hjá líki árásarmannsins í Örebro.
Þrjár byssur fundust hjá líki árásarmannsins í Örebro. EPA/CHRISTINE OLSSON

Lögreglan í Svíþjóð hefur borið kennsl á öll fórnarlömbin tíu í skotárásinni í Örebro í vikunni. Árásarmaðurinn notaði þrjá hálfsjálfvirka riffla við árásina og hefur ríkisstjórn Svíþjóðar opinberað ætlanir um að draga úr aðgengi að slíkum byssum.

Árásin átti sér stað um hádegi á þriðjudaginn í Campus Risbergska-skólanum í Örebro. Í skólanum fer fram fullorðinsfræðsla en hann var áður framhaldsskóli.

Rickard Andersson skaut sjö konur og þrjá menn til bana, áður en hann beindi byssu sinni að sjálfum sér. Fimm sem hann særði eru enn á sjúkrahúsi. Þar er um að ræða þrjár konur og tvo menn.

Í frétt Aftonbladet segir að fórnarlömb Anderssons hafi verið frá 28 ára til 68 ára gömul. Einn þeirra, hinn 28 ára gamli Salim Iskef, hringdi í foreldra sína og unnustu úr skólanum og kvaddi þær áður en Andersson skaut hann til bana.

Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir.

Fram kom á blaðamannafundi í gær að þrjár byssur hefðu fundist nærri Andersson í skólanum, auk mikils magns af skotfærum og tómum magasínum.

Ein af byssum þessum var af gerðinni Browning BAR long track, samkvæmt frétt SVT, sænska ríkisútvarpsins, en það er hálfsjálfvirkur riffill. Hann mun einnig hafa átt tvær haglabyssur og riffillinn ein af byssunum fjórum fannst á heimili hans.

Ekkert vopnanna var af gerð sem byggir á AR-15 rifflum en slík vopn vill ríkisstjórn Svíþjóðar nú banna þar í landi. Vopn af þeirri gerð hafa ítrekað verið notuð til mannskæðra skotárása í Bandaríkjunum.

Breska ríkisútvarpið vitnar í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um að sumar tegundir vopna séu svo hættulegar að almennir borgarar eigi ekki að eiga að þeim greiðan aðgang. Talað var um hálfsjálfvirka riffla en AR-15 byssur voru nefndar sérstaklega.

Þá er haft eftir Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar sem er staddur í Lettlandi, að tryggja verði að rétt fólk eigi byssur í Svíþjóð.

Núverandi reglur landsins segja að allir yfir átján ára aldri, sem hafi hreina sakaskrá, megi sækja um byssuleyfi. Um 580 þúsund manns eru með byssuleyfi í Svíþjóð.


Tengdar fréttir

Var vopnaður þremur byssum

Tilefni skæðustu skotárásar Svíþjóðar liggur enn ekki fyrir. Lögreglan í Svíþjóð segir rannsókn munu taka sinn tíma en myndin sé byrjuð að skýrast. Lögregluþjónar hafa rætt við vitni og lagt hald á muni á borð við síma sem voru í eigu árásarmannsins.

Nafn­greina árásar­manninn í Örebro

Lögregla í Svíþjóð vill meina að hinn 35 ára Rickard Andersson hafi verið árásarmaðurinn sem banaði tíu námsmönnum í Campus Risbergska-skólanum í Örebro í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×