Erlent

Var vopnaður þremur byssum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá minningarathöfn í Örebro í gærkvöldi.
Frá minningarathöfn í Örebro í gærkvöldi. EPA/ANDERS WIKLUND

Tilefni skæðustu skotárásar Svíþjóðar liggur enn ekki fyrir. Lögreglan í Svíþjóð segir rannsókn munu taka sinn tíma en myndin sé byrjuð að skýrast. Lögregluþjónar hafa rætt við vitni og lagt hald á muni á borð við síma sem voru í eigu árásarmannsins.

Árásin átti sér stað um hádegi á þriðjudaginn í Campus Risbergska-skólann í Örebro. Í skólanum fer fram fullorðinsfræðsla en var hann áður framhaldsskóli.

Lögreglan í Svíþjóð hélt blaðamannafund um árásina í morgun.

Þar kom meðal annars fram að útkallið vegna árásarinnar barst klukkan 12:33 að staðartíma og að fyrstu lögregluþjónarnir voru mættir á vettvang rétt rúmlega fimm mínútum síðar.

Árásarmaðurinn hefur verið nafngreindur sem hinn 35 ára gamli Rickard Andersson. Honum hefur verið lýst sem miklum einfara og hafði hann verið atvinnulaus um nokkuð skeið. Hann skipti um nafn fyrir átta árum en var með hreina sakaskrá og hafði ekki komist í kast við lögin áður.

Á fundinum kom fram að mögulegt sé að Andersson hafi á einhverjum tímapunkti stundað nám í skólanum en það mun ekki hafa verið staðfest. Aftonbladet hefur eftir heimildarmönnum sínum að svo virðist sem Andersson hafi ekki skotið fólk af handahófi. Hann hafi gengið framhjá sumum í skólanum.

Andersson skaut tíu til bana og særði nokkra til viðbótar en svipti sig svo lífi þegar lögregluþjóna bar að garði. Fyrst skaut hann þó á lögregluþjóna sem mættu fyrstir á vettvang, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Svíþjóðar um blaðamannafundinn.

Lögregluþjónarnir svöruðu ekki skothríðinni en Andersson er sagður hafa notast við reyksprengjur í skólanum. Lík hans fannst ekki fyrr en rúmum klukkutíma eftir að lögregluþjónar mættu á vettvang. Hefur það verið útskýrt með því að vísa til þess að skólalóðin sé mjög stór og óreiðan hafi verið mikil á vettvangi.

Andersson var með leyfi fyrir fjórum byssum og þrjár þeirra fundust við hlið líks hans. Lögreglan hefur lagt hald á fjórðu byssuna sem mun væntanlega hafa fundist á heimili hans. Einnig fundust um tíu tóm magasín í skólanum og mikið magn af ónotuðu skotum í fórum Anderssons.

Ekki hefur verið upplýst um tegund skotvopnanna en að minnsta kosti eitt þeirra mun hafa verið riffill. Áður hefur komið fram að Andersson bar vopnin inn í skólann í gítartösku, eða sambærilegri tösku, og gekk um skólann um tíma. Þá hafi hann farið inn á salerni þar sem hann klæddi sig í föt í felulitum og tók upp byssurnar.


Tengdar fréttir

Þetta er vitað um árásarmanninn í Örebro

Maðurinn sem skaut að minnsta kosti tíu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í gær var 35 ára gamall og atvinnulaus. Hann er talinn hafa verið einn að verki og tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir en ekki er talið að einhverskonar hugmyndafræði hafi ráðið ferðinni.

Ellefu létust í skotárásinni

Ellefu er látnir eftir skæða skotárás í skóla í Svíþjóð. Lögregla segir að tölu látinna geta hækkað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×