Skoðun

Auð­vitað er gripið til hræðsluáróðurs

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar

Við mátti búast að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, hafi reynt að svara greininni þar sem höfundur fjallar um tilskipanir Trumps. Þær fjalla réttindi barna, kvenna og stúlkna sem hafa horfið með tilkomu laga um kynrænt sjálfræði. Trump hefur með tilskipunum sínum endurheimt þau réttindi og vonandi gengur það eftir. Kvenkynið má vera ánægt með þessar tilskipanir.

Hvaða réttindi endurheimta konur og stúlkur

Nú geta stúlkur og konur baðað sig án þess að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, mæti þar.

Nú getur stúlkur og konur, stundað íþróttir í kvennaflokkum, án þess að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, sé í liðinu eða með mótherja.

Nú geta konur keppt við jafnoka sína og treyst því að það verður kona sem hampar titlinum, ekki karlmaður sem skilgreinir sig sem konu. Allir menn hljóta að fagna því, kvennaíþróttir er fyrir konur.

Nú geta konur í fangelsum um frjálst höfuð sér strokið án þess að eiga á hættu að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, oftast eftir að hann var dæmdur eða settur á bak við lás og slá, sé vistaður í kvennafangelsi. Oft eru þetta karlmenn sem hafa nauðgað, beitt kynferðislegu ofbeldi og myrt. Ekki alltaf.

Öll þessi réttindi KVENNA hurfu þegar lög um kynrænt sjálfræði var samþykkt í mörgum löndum. Stjórnmálamenn virðast ekki hafa sett fyrirvara á þau réttindi kvenkynsins héldust við lagasetninguna. Víða mótmæla menn að réttindi kvenna hurfu eins og dögg fyrir sólu við lögum. Menn virðast ekki hafa gert sér grein fyrir réttinda missi kvenkynsins. Enginn fyrirvari var sett í lögin, menn gátu bara farið og skipt út síðustu fjórum tölum kennitölunnar og við það ,,skipt“ um kyn.

Bakslag eða ávinningur

Mönnum greinir um á hvort um bakslag í réttindabaráttu ,,trans-fólks“ sé að ræða. Ef menn kalla það að stúlkur og konur endurheimti réttindi sín á ýmsum sviðum bakslag fyrir annan hóp þá verður svo að vera. Hvernig hefur verið talað um bakslag í kvennabaráttunni þegar ólögunum um kynrænt sjálfræði var komið á og konur misstu réttindi. Eins og norski þingmaðurinn sagði; verið að búa til lög um lygi sem á að vera sannleikur.

Spurðu þig lesandi spurninga

Af hverju á ég, stelpan þín, eiginkonan þin, móðir þín, frænka þín og aðrar konur að sætta sig við að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, hafi aðgang að einkarýmum kvenna?

Af hverju eiga stelpur að sætta sig við að, strákur, sem skilgreinir sig sem stelpur, spili í sama liði eða í liði mótherja, s.s. í skíðaíþrótt, í sundi, í fótbolta, boxi o.s.frv.?

Af hverju á þér nákominn kvenkyns fangi að sætta sig við og eiga hættu á að í fangelsið komi karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, þar sem mikilvægt er að fangelsunum sé kynjaskipt?

Ekkert af þessu eru lygar, alveg sama hvað menn hrópa hátt. Jafnmikill sannleikur og að kynin eru tvö.

Trump ákvað með tilskipunum sínum að taka á þessum málaflokkum. Með sér í lið fékk hann stóran hluta íþróttakvenna í Bandaríkjunum. Til eru samtök þar í landi og Ástralíu sem berjast gegn körlum, sem skilgreina sig sem konur, í kvennaíþróttum. Þökk sé honum. Konur vona innlega að tilskipanir hans smitist til annarra landa.

Höfundur er M.Ed. M.Sc. B.Ed. og sjúkraliði.




Skoðun

Sjá meira


×