Körfubolti

Stólarnir svara með bombu á loka­degi gluggans

Sindri Sverrisson skrifar
Dimitris Agravanis er landsliðsmaður Grikklands. Hér er hann í leik gegn Tékkum í 16-liða úrslitum á EM 2022.
Dimitris Agravanis er landsliðsmaður Grikklands. Hér er hann í leik gegn Tékkum í 16-liða úrslitum á EM 2022. Getty/Pedja Milosavljevic

Tindastóll hefur tryggt sér krafta gríska landsliðsmannsins Dimitris Agravanis. Óhætt er að segja að um gríðarlegan liðsstyrk sé að ræða og afar áhugaverða viðbót við leikmannaflóruna í Bónus-deildinni í körfubolta.

Dimitris er eldri bróðir Giannis Agravanis sem leikið hefur vel með Tindastóli í vetur, en liðið er í 2. sæti Bónus-deildarinnar.

Dimitris er þrítugur og hefur verið liðsmaður í gríska landsliðinu, einu albesta landsliði Evrópu, um árabil. Hann spilaði til að mynda í leiknum gegn Íslandi á EM 2017 sem Grikkir unnu af miklu öryggi. Á EM 2022 var Dimitris með 6,3 stig að meðaltali í leik fyrir Grikki, tók 3,7 fráköst og gaf 1,1 stoðsendingu.

Árið 2015 var Dimitris valinn af Atlanta Hawks í NBA-nýliðavalinu en hann hefur þó spilað allan sinn feril í Evrópu,, með stórliðum á borð við Olympiacos, Panathinaikos og AEK Aþenu. Hann hefur tvívegis orðið grískur meistari og og hann var valinn í úrvalslið grísku deildarinnar árið 2022.

Félögin í Bónus-deildinni hafa verið dugleg við að bæta við sig mönnum með afar áhugaverða ferilskrá að undanförnu, og það stefnir því í afar spennandi lokasprett og úrslitakeppni.

Félagaskiptaglugginn lokast á miðnætti en Dimitris er kominn með félagaskipti og ætti því að geta spilað sinn fyrsta leik fyrir Tindastól í stórleiknum við topplið Stjörnunnar í Garðabæ á sunnudagskvöld.

Yngri bróðirinn Giannis átti stórleik fyrir Tindastól í gærkvöld, gegn Hetti á Egilsstöðum, og skoraði þar 27 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann var með langflesta framlagspunkta eða 31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×