Innlent

Spáir því að það gjósi eftir rúman mánuð

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson jarðeðlisfræðing um stöðuna á Sundhnúksgígaröðinni. 

Hann segir að búast megi við gosi á svæðinu um mánaðarmótin febrúar - mars. 

Þá verður rætt við forsætisráðherra um ástandið varðandi Grænland en hún hefur verið gagnrýnd, meðal annars af fyrrverandi utanríkisráðherra fyrir að mæta ekki á fund sem Mette Frederikssen forsætisráðherra Dana boðaði til með skömmum fyrirvara um síðustu helgi. 

Að auki segjum við frá þjóðhagsspá Íslandsbanka og nýrri skýrslu um leikskólastigið í Evrópu þar sem fram kemur að Íslendingar leggi meira í leikskólakerfið en önnur Evrópulönd ef miðað er við hlutfall af vergri landsframleiðslu.

Í sportinu verður svo fjallað um Meistaradeildina í fótbolta þar sem línur eru farnar að skýrast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×