Sport

Í klandri eftir að hafa þóst míga á bikar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arynu Sabalenka tókst ekki að vinna Opna ástralska meistaramótið þriðja árið í röð.
Arynu Sabalenka tókst ekki að vinna Opna ástralska meistaramótið þriðja árið í röð. getty/Robert Prange

Tenniskonan Aryna Sabalenka og þjálfarateymi hennar kom sér í klandur með því að þykjast pissa á bikarinn sem hún fékk fyrir að lenda í 2. sæti á Opna ástralska meistaramótinu.

Sabalenka tapaði fyrir Madison Keys í úrslitaleiknum í kvennaflokki um helgina. Ekkert varð því af því að hún ynni Opna ástralska þriðja árið í röð.

Sabalenka var svekkt með niðurstöðuna og eyðilagði tennisspaða sinn áður en hún gekk af velli. Henni rann svo reiðin og hún þótti halda fína tölu á verðlaunaafhendingunni.

En þegar í búningsklefann var komið þóttust Sabalenka og þjálfarateymi hennar pissa á bikarinn sem hún fékk fyrir að lenda í 2. sætinu. Myndband af því fór í dreifingu á samfélagsmiðla og margir hafa sakað Sabalenku og þjálfara hennar um vanvirðingu.

Aðrir vildu meina að um saklaust grín væri að ræða og ekki ætti að gera mál úr þessari uppákomu.

Hin 26 ára Sabalenka er í efsta sæti heimslistans í einliðaleik. Hún hefur unnið þrjú risamót á ferlinum; Opna ástralska tvisvar og Opna bandaríska einu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×