Körfubolti

Ótrú­legar Þórs­konur: „Þær eru stór­hættu­legar“

Sindri Sverrisson skrifar
Eins og sjá má eru þær Amandine Toi og Esther Fokke óhemju hittnar fyrir utan þriggja stiga línuna. Toi hittir úr 46% skota sinna þar en Fokke úr 40%.
Eins og sjá má eru þær Amandine Toi og Esther Fokke óhemju hittnar fyrir utan þriggja stiga línuna. Toi hittir úr 46% skota sinna þar en Fokke úr 40%. Stöð 2 Sport

Þórskonur virðast hreinlega óstöðvandi í Bónus-deildinni í körfubolta og þar hjálpar til mögnuð þriggja stiga hittni þeirra Amandine Toi og Esther Fokke, eins og fjallað var um í Körfuboltakvöldi kvenna á Stöð 2 Sport.

Fokke setti niður 7 af þriggja stiga skotum sínum í 86-80 sigri gegn toppliði Hauka í vikunni. Toi skoraði aðeins einn þrist í þessum leik en hefur að meðaltali sett niður tæplega þrjá í leik í vetur og verið með 46% hittni. Fokke er með 4,8 þriggja stiga körfur að meðaltali í leik og 40% hittni.

„Þetta er rosalegt. Ég man ekki eftir annarri eins hittni hjá tvennu í liði, eins og hjá þessum tveimur,“ sagði Hörður Unnsteinsson þegar fjallað var um Þórsliðið í þættinum á miðvikudagskvöld.

„Þær eru stórhættulegar. Maður myndi telja það gott að vera í 37% en að vera í 46% eins og Amandine er ekkert smá flott,“ sagði Helena Sverrisdóttir en umræðuna má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Körfuboltakvöld - Þórskonur tapa aldrei heima

Þór hefur unnið alla heimaleiki sína í Bónus-deildinni í vetur, og alls átta heimaleiki í röð síðan liðið tapaði síðast á Akureyri 13. apríl á síðasta ári.

Þessi heimavallarárangur gerir að verkum að Þór er aðeins tveimur stigum á eftir Haukum í baráttu um deildarmeistaratitilinn, nú þegar þrjár umferðir eru eftir fram að úrslitakeppni.

„Það er ótrúlegt hversu sterkar þær eru á heimavelli. Þetta er eiginlega uppáhalds liðið mitt. Það er svo gaman að horfa á þær spila. Allar aðgerðir eru gerðar á háu tempói. Þess vegna losna þær og fá opin skot, því þær gera allt hratt,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir en þáttinn í heild geta áskrifendur fundið á íþróttasíðunni á sjónvarpsvef Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×