Handbolti

Valur ekki í teljandi vand­ræðum með Gróttu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þórey Anna var frábær í kvöld.
Þórey Anna var frábær í kvöld. vísir/anton brink

Gestirnir í Gróttu sáu aldrei til sólar þegar liðið mætti Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 40-19.

Það verður seint sagt að leikur kvöldsins hafi verið jafn en eftir að staðan var jöfn 1-1 í upphafi leiks var ljóst hvort liðið færi með sigur af hólmi. Staðan var 23-9 í hálfleik og lauk leiknum með 19 marka sigri Vals, lokatölur 40-19.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir var mögnuð í liði Vals og skoraði 12 mörk. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir komu þar á eftir með fimm mörk hvor.

Elín Rósa gaf einnig fimm stoðsendingar. Í markinu varði Hafdís Renötudóttir 17 skot. Hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir markahæst með fimm mörk.

Valur er á toppi deildarinnar með 24 stig að loknum13 leikjum. Grótta er í botnsætinu með aðeins fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×