Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Egypta­landi: Nokkrir með fullt hús

Íþróttadeild Vísis skrifar
Aron Pálmarsson átti stórleik gegn Egyptum og skoraði átta mörk.
Aron Pálmarsson átti stórleik gegn Egyptum og skoraði átta mörk. vísir/vilhelm

Íslendingar stigu stórt skref í átt að átta liða úrslitunum á HM í handbolta karla með sigri á Egyptum, 24-27, í milliriðli 4. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu stórvel í kvöld og nokkrir voru í heimklassa.

Ísland var allan tímann með frumkvæðið í leiknum og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 9-13. Viktor Gísli Hallgrímsson fór hamförum í markinu og vörnin var gríðarlega öflug eins og gegn Slóveníu.

Íslenska liðið gaf ekkert eftir í seinni hálfleik og hélt því egypska í 3-5 marka fjarlægð. Viggó Kristjánsson og Aron Pálmarsson spiluðu eins og englar í sókninni sem Gísli Þorgeir Kristjánsson stýrði af mikilli festu. Vörnin var svo framúrskarandi með Elvar Örn Jónsson og Ými Örn Gíslason fremsta í flokki.

Ísland var með góða stjórn á leiknum allan tímann og leikmennirnir framkvæmdu góðri leikáætlun Snorra Steins Guðjónssonar fullkomlega. 

Þegar yfir lauk munaði þremur mörkum á liðunum, 24-27. Íslendingar eru á toppi milliriðils 4 með sex stig. Næsti leikur Íslands er gegn Króatíu á föstudagskvöldið en með sigri þar tryggir íslenska liðið sér sæti í átta liða úrslitum HM.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Egyptalandi:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 5 (18/1 varin skot - 55:58 mín.) Hélt uppteknum hætti frá því í síðasta leik. Varði eins og óður maður í fyrri hálfleik, alls tíu skot (53 . Datt aðeins niður í seinni hálfleik en reis upp undir lokin og varði mikilvæga bolta. Viktor varði alls átján skot, eða 44 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Búinn að vera besti markvörður mótsins.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 5 (3 mörk - 59:11 mín.) Sýndi fádæma öryggi í færunum sínum í fyrri hálfleik og skoraði þá mörkin sín þrjú. Fékk ekki úr neinu að moða í seinni hálfleik en var virkilega flottur í vörninni allan tímann.

Elvar Örn Jónsson, vinstri skytta - 6 (0 mörk - 41:36 mín.) Skotin gengu ekki hjá Elvari í kvöld en vörnin hjá honum, herregud! Var úti um allt, ágengur og baráttuglaður en um leið skynsamur. Braut niður ófáar sóknir Egypta og nær frábærlega saman með Ými í miðri vörninni. Var með flestar löglegar stöðvanir í íslenska liðinu, eða átta.

Janus Daði Smárason, leikstjórnandi - 5 (2 mörk - 26:14 mín.) Gaf tóninn líkt og gegn Slóveníu. Skoraði fyrstu tvö mörk Íslands og var framúrskarandi góður í vörninni allan tímann. Stal boltanum í tvígang. Gaf líka þrjár stoðsendingar og var yfirvegaður og öruggur í sínum aðgerðum.

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 6 (9/4 mörk - 51:31 mín.) Hneigðu þig drengur! Besti landsleikur Viggós ásamt leiknum fræga gegn Frökkum á EM 2022. Skoraði níu mörk og var markahæstur í íslenska liðinu. Nýtti fyrstu fjögur vítin sín og hafði þá skorað úr öllum ellefu vítunum sínum á HM. Ógnandi og útsjónarsamur og enn og aftur frábær í vörninni. Forráðamenn Erlangen hljóta að vera í sjöundi himni að vera búnir að tryggja sér þjónustu Viggós.

Sigvaldi Guðjónsson, hægri hornamaður - 3 (1 mörk - 57:06 mín.) Byrjaði inn á og spilaði allan leikinn. Klikkaði á fyrstu tveimur færunum sínum en nýtti það síðasta. Var hluti af sterkri íslenskri vörn.

Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 5 (1 mörk - 34:47 mín.) Lét til sín taka á báðum endum vallarins. Algjörlega magnaður í vörninni, grimmur og fastur fyrir og gríðarlega hreyfanlegur. Hefur spilað eins og algjör jarl í vörninni á þessu móti. Skoraði líka eitt mark og fiskaði tvö vítaköst. Topp frammistaða hjá Ými.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - (0 varin skot - 00:10 mín.) Kom inn á til að reyna að verja eitt vítakast.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 5 (2 mörk - 26:47 mín.) Besti leikur Gísla á mótinu og einn hans besti landsleikur frá upphafi. Sótti linnulaust á egypsku vörnina og setti endalausa pressu á hana. Gekk betur að losa boltann en oft áður, skoraði tvö mörk með gegnumbrotum, gaf fimm stoðsendingar og fiskaði tvö víti. Þetta var Gísli eins og hann gerist bestur.

Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 6 (8 mörk - 37:33 mín.) Hvar á að byrja? Besti landsleikur Arons síðan hann skoraði tíu mörk og gaf níu stoðsendingar í sigrinum frækna á Dönum á EM 2020. Skoraði átta mörk úr tíu skotum og var grjótharður í vörninni. Alvöru fyrirliðaframmistaða hjá Aroni sem virðist njóta þess í botn að leiða íslenska liðið áfram og til góðra verka. Virkar léttur á fæti og með allt sitt á kristaltæru.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 4 (1 mark - 28:09 mín.) Eyjamaðurinn lét ekki sitt eftir liggja í leiknum. Spilaði af fullum krafti í vörninni og stóð hana með mikilli prýði. Skoraði líka eitt mark.

Haukur Þrastarson, vinstri skytta - (0 mörk - 00:51 mín.) Kom inn á í smá stund í fyrri hálfleik og tók eitt skot sem geigaði.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (0 mörk - 00:07 mín.) Kom inn á í lokasókn Íslands.

Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - (spilaði ekkert)

Bjarki Már Elísson, vinstra horn - (spilaði ekkert)

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægra horn - (spilaði ekkert)

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari - 6 Verið með allt á hreinu á HM og virðist hafa lært talsvert af síðasta móti. Leikáætlunin gekk fullkomlega upp í kvöld. Ágeng vörnin kom Egyptum í mikil vandræði og síðan verður allt auðveldara með markvörð í stuði. Íslenska liðið var líka gríðarlega snöggt til baka eins og í síðasta leik og Egyptaland skoraði aðeins eitt hraðaupphlaupsmark í kvöld. Sóknin var svo talsvert betri en í leiknum gegn Slóveníu og Gísli nýttist íslenska liðinu betur en þá. Snorri var klókur í að finna stundir til að hvíla Viggó og negldi allar ákvarðanir í þessum leik.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur

Tengdar fréttir

„Þurfum að halda okkur á jörðinni“

„Rosa góð. Það var kannski þannig aldrei nein spenna í þessu þó við höfum aldrei náð að slíta þá frá okkur,“ sagði Viggó Kristjánsson um sigur Íslands á Egyptalandi á HM í handbolta. Ísland er með fullt hús stiga í milliriðli eftir frábæra byrjun. Viggó segir menn þó þurfa að halda einbeitingu.

„Geðveikt að sjá þennan bláa vegg“

„Við vorum að vinna Egypta! Við þurfum að átta okkur á í hvaða stöðu við erum komnir! Við erum komnir með sex stig og maður er að bilast af jákvæðni núna,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, í skýjunum eftir frábæran sigur gegn Egyptum á HM í handbolta í kvöld.

„Leið eins og þeir kæmust ekki í gegn“

„Geggjuð, fannst ótrúlega gaman að spila þennan leik,“ sagði Elvar Örn Jónsson um tilfinninguna eftir fjórða sigur Íslands í röð á HM í handbolta. 

„Kannski er ég orðinn frekur“

„Þetta var frábær sigur, frábær leikur hjá mínu liði. Við náðum að fylgja eftir frábærri frammistöðu og það er mikilvægt að gera hlutina ekki bara einu sinni heldur aftur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari strax eftir sigurinn gegn Egyptum í kvöld, á HM í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×