Handbolti

Sjáðu stemninguna hjá stórum hópi Ís­lendinga í Zagreb

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stuðningsfólk Íslands á Johan Franck barnum í Zagreb.
Stuðningsfólk Íslands á Johan Franck barnum í Zagreb. Vísir/Vilhelm

Fjöldi Íslendinga er saman kominn í Zagreb í Króatíu til að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu í handbolta á heimsmeistaramótinu.

Ísland mætir Egyptalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 í kvöld. Fyrir leikinn koma stuðningsmenn íslenska liðsins saman á barnum Johann Franck í miðborg Zagreb.

Valur Páll Eiríksson, íþróttafréttamaður Vísis og Stöðvar 2, var í beinni útsendingu frá samkomu íslensku stuðningsmannanna klukkan 16:00. Upptöku frá heimsókn hans á Johann Franck má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Sjáðu stemninguna hjá stórum hópi Ís­lendinga í Zagreb

Íslendingar eru með fjögur stig í milliriðli 4 eftir að hafa unnið alla leiki sína í riðlakeppninni. Það sama gerðu Egyptar en þeir sigruðu meðal annars heimalið Króata. Tvö efstu liðin í milliriðlinum komast í átta liða úrslit.

Leikur Íslands og Egyptalands hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Leikurinn verður svo gerður ítarlega upp í máli og myndum á Vísi.

Vilhelm Gunnarsson var þá með ljósmyndavélina á lofti en myndir úr teiti dagsins má sjá að neðan.

Gleðin var mikil.Vísir/Vilhelm
Flott klæddir.Vísir/Vilhelm
Föngulegur hópur kvenna.Vísir/Valur Páll
Þessar voru hressar.Vísir/Vilhelm
Okkar maður Henry Birgir tók púlsinn. Sterkur.Vísir/Vilhelm
Treyjur, kambar og andlitsmálning.Vísir/Vilhelm
Það er mikilvægt að mála sig vel.Vísir/Vilhelm
Stuðningsfólk Bjarka Más.Vísir/Vilhelm
Ferskir.Vísir/Vilhelm
Málað og málað.Vísir/Vilhelm
Áfram Ísland.Vísir/Vilhelm
Möst að hafa skeggið í lagi líka.Vísir/Vilhelm
Fjölskylda Gísla Þorgeirs lét sig ekki vanta.Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Það voru Adidas treyjur til sölu!Vísir/Vilhelm
Skeggið sannarlega í lagi.Vísir/Vilhelm
Góðir Henson gallar.Vísir/Vilhelm
Þessi ungi maður er klár í slaginn.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×