Handbolti

Ís­lenskt stuðningsfólk varar við svindli í höllinni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þónokkrir Íslendingar hafa orðið fyrir barðinu á óprúttnum aðilum í Zagreb. Vel þekkt er að bílstjórar ofrukki en ef til vill full langt gengið að það sé gert af skipulagsaðilum í keppnishöllinni sjálfri.
Þónokkrir Íslendingar hafa orðið fyrir barðinu á óprúttnum aðilum í Zagreb. Vel þekkt er að bílstjórar ofrukki en ef til vill full langt gengið að það sé gert af skipulagsaðilum í keppnishöllinni sjálfri. Vísir/Vilhelm

Ísland vann frábæran 23-18 sigur á Slóveníu á HM karla í handbolta í gærkvöld en kvöldið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig hjá öllum Íslendingum í íþróttahöllinni í Zagreb.

Stemningin var góð hjá íslenska hópnum sem studdi við bakið á strákunum okkar í ótrúlegum sigri gærkvöldsins sem vannst á góðum varnarleik og stórkostlegri frammistöðu markvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar.

Nokkrir hundruðir Íslendinga studdu við íslenska liðið í stúkunni, en voru töluvert fámennari en stór sveit Slóvena sem skyndilega varð fjórfalt fjölmennari en hafði verið á leikjum Slóveníu í aðdragandanum.

Ein stuðningskvenna íslenska liðsins greindi frá leiðinlegri reynslu í höllinni í króatísku höfuðborginni í gær þegar eiginmaður hennar fór í sjoppuna.

„Maðurinn minn lenti í frekar leiðinlegu atviki á leikvanginum sem ég vildi upplýsa ykkur um. Hann fór í hálfleik að kaupa eina kók fyrir mig og þegar að hann er að borga á posanum finnst honum svipurinn á afgreiðslustúlkunni eitthvað skrítinn svo hann biður hana um strimilinn. Þá hafði hún rukkað hann um 60 evrur!“

„Eins gott að hann rak augun í þetta og kallaði í kjölfarið á einhvern eldri mann þarna bak við barborðið sem borgaði honum peninginn til baka,“ segir Herdís Rútsdóttir meðal annars í færslu sem hún setti inn í Facebook-hóp stuðningsmanna íslenska liðsins.

Færsla Herdísar í stuðningsmannahóp íslenska landsliðsins á Facebook.Skjáskot

Í sömu færslu segir hún vinafólk hafa lent í leigubílsstjóra sem hafi ofrukkað allsvakalega. Starfsmenn Morgunblaðsins lentu þá í svipuðu atviki eftir leik Króatíu og Barein. Þeir voru rukkaðir um 100 evrur fyrir leigubíl sem ætti í versta falli að kosta á bilinu 15-30 evrur líkt og rætt var um í HM í dag hér á Vísi.

Búist er við því að fjöldi íslenskra stuðningsmanna aukist til muna á næstu dögum þegar skipulagðar ferðir Icelandair og Play fara á fullt til Zagreb.

Í ummælum við færslu Herdísar mælir Ívar Benediktsson, ritstjóri Handbolti.is, með því að fólk fari varlega í leigubílakaup og geri það helst í gegnum þjónustu Bolt og Uber, þar sem upphæðin er ákveðin fyrirfram. Með því sleppi það við álíka látalæti og lýst hefur verið að ofan.

Næsti leikur Íslands er sá fyrsti í milliriðli, við Egyptaland á miðvikudagskvöldið, klukkan 19:30. Þar mætast efstu tvö lið milliriðilsins og toppsætið undir.


Tengdar fréttir

„Þá er helvíti leiðinlegt að spila á móti okkur“

„Ég er ógeðslega leiður,“ sagði stríðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason skælbrosandi þegar hann mætti í viðtal eftir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu á HM í handbolta. Sigurinn þýðir að Ísland fer með fullt hús stiga í milliriðil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×