Handbolti

Skýrsla Vals: Viktor og virkisveggurinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Viktor Gísli og virkið sem Ísland reisti fyrir framan hann skilaði sigri kvöldsins.
Viktor Gísli og virkið sem Ísland reisti fyrir framan hann skilaði sigri kvöldsins. VÍSIR/VILHELM

Íslenskur virkisveggur var reistur í Zagreb í kvöld sem stóðst allar árásir Slóvena. Svo sterkar voru stoðirnar að byggingin dró úr þeim allan mátt.

Í hæðunum fyrir ofan Zagreb stendur feiknarstórt virki, Medvedgrad, sem er nokkuð vinsæll ferðamannastaður.

Í virkinu miðju er hár turn sem má gjarnan sjá frá borginni á heiðskírum dögum þegar kolamengunin er í lágmarki. Lagst var í byggingu virkisins eftir að Mongólar höfðu lagt Zagreb í rúst árið 1242 og lauk byggingunni tuttugu árum síðar, 1262.

20. janúar 2025 hófu Íslendingar byggingu nýs virkisveggs í Zagreb og stóð hann keikur gegn árásum slóvenskrar sóknarsveitar. Líkt og í Medvedgrad var turn á bakvið íslenska vegginn sem stóð sannarlega upp úr.

Medvedgrad virkisveggurinn.Wiki

Þessi frammistaða varnar og markmanns í kvöld var með ólíkindum. Viggó, Elvar, Elliði, Ýmir, Janus, sama hver það var. Menn slógu Slóvena sleitulaust.

Við ofjarl var að etja í stúkunni þar sem Slóvenar voru skyndilega um fjórfalt fleiri en þeir höfðu verið hingað til á mótinu. Ætli Slóvenar hafi ekki verið um 2.000 í stúkunni borið saman við 500 Íslendinga.

En það eina sem þessir slóvensku stuðningsmenn fengu að sjá var kennslubókardæmi um góða vörn frá íslenska liðinu.

Þjálfarinn Uros Zorman þurfti að taka leikhlé þegar Slóvenía hafði skorað eitt mark eftir níu mínútur og gerði það svo aftur tíu mínútum síðar þegar þeir höfðu bara skorað fjögur. Líkt og í stúkunni vorum við fámennari en Slóvenarnir stóran hluta en það skipti bara engu máli.

Augnablikið þegar Aron stelur boltanum, gefur Tom Brady pílu á Óðinn sem skorar og stelur honum svo aftur til að fara sjálfur upp og skora. Það gerðist þegar við vorum fimm gegn sex og það var sannarlega þannig að engu breytti um fjölda Íslendinga á vellinum.

Þetta var eitt af þessum augnablikum sem kristallar varnarleikinn í þessum blessaða leik sem var gjörsamlega geggjaður frá upphafi til enda. Ef varnarleikurinn klikkaði var Viktor Gísli þarna á bakvið eins og ég veit ekki hvað.

Maður hafði smá áhyggjur í byrjun seinni þegar við missum Elvar út með rautt og skorum ekki í sex og hálfa mínútu en auðvitað var það svo Aron sem hjó á hnútinn.

Það komu nokkur augnablik þar sem virtist ætla að gefa á bátinn og slóvensku stuðningsmennirnir komust í stuð í stúkunni. En alltaf var Viktor Gísli þá mættur til að sturta vatnsgusu á vonarneistann.

23-18 sigur var síst of stór og enn má bæta færanýtingu. Það voru hins vegar Viktor og virkisveggurinn fyrir framan hann sem skópu þennan sigur og allt bjart fyrir framhaldið.

Egyptar eru næstir strax á miðvikudag og toppsætið í milliriðli undir.

Medvedgrad hefur staðið í tæp 800 ár en nú er spurningin hversu lengi íslenska virkið stendur. Standi það í viku til er morgunljóst að strákarnir fara í átta liða úrslit.


Tengdar fréttir

„Nú erum við í aðstöðu til að láta vaða“

„Ég er rosa glaður með mikilvæg tvö stig inn í milliriðil. Nú erum við í aðstöðu til að láta vaða,“ sagði Janus Daði Smárason eftir leikinn frábæra gegn Slóvenum á HM í kvöld.

„Slökum aðeins á og spörum fyrirsagnirnar“

„Ég er mjög glaður, engin spurning,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari eftir sinn glæstasta sigur í því starfi, 23-18 gegn sterku liði Slóvena í Zagreb í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×