Veður

Á­fram norðaustan­hríð og appel­sínu­gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Appelsínugilar og gular viðvaranir eru í gildi fram eftir degi.
Appelsínugilar og gular viðvaranir eru í gildi fram eftir degi. Veðurstofan

Gera má ráð fyrir nokkuð hvassri norðaustanátt með hríðarveðri á Norðaustur og Austurlandi í dag, en éljum norðvestantil. Lægðin sem stjórnar veðrinu er fyrir sunnan land og hún fjarlægist smám saman.

Á vef Veðurstofunnar kemur fram að appelsínugular viðvaranir séu áfram í gildi austantil vegna hríðarinnar. Á Austurlandi að Glettingi er viðvörununin í gildi til klukkan 14 í dag en til miðnættis á Austfjörðum. Hættustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Seyðisfirði og Neskaupstað og hefur þar verið gripið til rýminga, en óvissustig er annars í gildi á Austfjörðum.

Þá eru gular viðvaranir til í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra , Norðurlandi eystra, Miðhálendi og Suðausturlandi fram eftir degi.

„Á morgun lægir og léttir víða til, en norðaustanlands er spáð lítilsháttar éljum. Kólnandi veður, frost 1 til 10 stig annað kvöld, mest í innsveitum.

Á miðvikudag hvessir af suðaustri með stöku éljum við suðvestur- og vesturströndina. Hægari vindur annars staðar og á Norður- og Austurlandi er búist við björtu veðri og talsverðu frosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðins. 

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Minnkandi norðanátt, hæg breytileg átt seinnipartinn. Skýjað með köflum og stöku él norðaustantil fram eftir degi. Kólnandi veður, frost 1 til 10 stig um kvöldið.

Á miðvikudag: Suðaustan 5-13 m/s, víða bjartviðri og kalt, en 10-18 við suðvestur- og vesturströndina, dálítil él og hiti um eða yfir frostmarki.

Á fimmtudag: Austan og suðaustan 5-15, hvassast syðst. Slydda, rigning eða snjókoma með köflum sunnan- og vestanlands, hiti kringum frostmark. Að mestu þurrt annars staðar og frost víða 0 til 5 stig.

Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt með snjó- eða slydduéljum í flestum landshlutum. Frost 2 til 8 stig, en hiti nálægt frostmarki austanlands.

Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og él á víð og dreif. Kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×