Erlent

Rak for­mann mikil­vægrar nefndar að beiðni Trumps

Samúel Karl Ólason skrifar
Mike Johnson, þingforseti, vísaði til „áhyggja frá Mar a Lago“ þegar hann tilkynnti Mike Turner þá ákvörðun sína að reka hann úr embætti formanns leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildarinnar.
Mike Johnson, þingforseti, vísaði til „áhyggja frá Mar a Lago“ þegar hann tilkynnti Mike Turner þá ákvörðun sína að reka hann úr embætti formanns leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildarinnar. AP/Mark Schiefelbein

Mike Johnson, þingforseti fulltrúadeildar Bandaríkþings og leiðtogi Repúblikanaflokksins þar, vísaði í gær þingmanninum Michael R. Turner úr embætti formanns leyniþjónustumálanefndar þingsins. Það mun Johnson hafa gert að beiðni Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna.

Turner, sem skipaður var í embættið af Kevin McCarthy, forvera Johnson, hefur verið dyggur stuðningsmaður Úkraínumanna og hefur hann gagnrýnt aðra Repúblikana sem hafa verið andvígir hernaðaraðstoð Bandaríkjanna handa Úkraínumönnum. Þá gerði Turner marga Trump-liða reiða í fyrra þegar hann studdi framlengingu eftirlitsheimilda leyniþjónusta Bandaríkjanna.

Politico segir að Trump og helstu bandamenn hans hafi um nokkuð skeið þrýst á Johnson að reka Turner úr embætti. Þá sagði Turnar sjálfur við fréttakonu CBS News í gærkvöldi að þegar Johnson tilkynnti honum ákvörðunina hefði hann vísað til „áhyggja frá Mar a Lago“, heimili Trumps í Flórída.

Mike Turner, fyrrverandi formaður leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.AP/Mariam Zuhaib

Johnson sagði við blaðamenn í gærkvöldi að ákvörðunin hefði ekki verið Trumps, heldur hans eigin. Sagði hann Turner hafa staðið sig vel á erfiðum tímum en þörf væri á breytingum í nefndinni mikilvægu.

Hver tekur við Turner liggur ekki fyrir að svo stöddu. Johnson segist ætla að tilkynna það í dag.

Ákvörðun Johnson er sögð hafa komið mörgum þingmönnum Repúblikanaflokksins í opna skjöldu. Þar á meðal munu vera nokkrir þingmenn í leyniþjónustumálanefndinni.

Í fyrra skipaði Johnson þá Scott Perry og Ronny Jackson í nefndina en báðir hafa lengi verið dyggir stuðningsmenn Trumps og eru meðal þeirra þingmanna Repúblikanaflokksins sem hafa neitað að viðurkenna ósigur Trumps í forsetakosningunum 2020.

Washington Post hefur eftir Jim Himes, æðsta þingmanni Demókrataflokksins í nefndinni, að hann hafi miklar áhyggjur af því hver muni taka við af formannsembættinu af Turner.

Meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni er mjög lítill. Repúblikanar eru 219 og Demókratar eru 215 en eitt sæti situr autt. Johnson má því varla við því að reita þingmenn sína til reiði.


Tengdar fréttir

Trump kemur Johnson til bjargar

Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir stuðningi við Mike Johnson, þingforseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem vill sitja áfram í embætti á nýju kjörtímabili. Trump hafði sjálfur grafið verulega undan Johnson í embætti í lok ársins.

Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs

Bandarískir þingmenn á báðum deildum þingsins samþykktu í gærkvöldi bráðabirgðafjárlög eftir miklar deilur. Frumvarpið hefur verið sent til Hvíta hússins til undirritunar og er fastlega búist við því að Joe Biden, forseti, muni skrifa undir það.

Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi

Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings höfnuðu í gær nýju bráðabirgða fjárlagafrumvarpi sem Donald Trump, verðandi forseti, hafði lýst yfir stuðningi við. Takist ekki að semja nýtt frumvarp í dag og fá það samþykkt í bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni verður rekstur alríkisins í Bandaríkjunum stöðvaður á laugardagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×