Fótbolti

Svona var fyrsti blaða­manna­fundur Arnars

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson svaraði spurningum fjölmiðla í fyrsta sinn eftir að hann tók við nýja starfinu, sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Arnar Gunnlaugsson svaraði spurningum fjölmiðla í fyrsta sinn eftir að hann tók við nýja starfinu, sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. vísir/vilhelm

Vísir var með beina útsendingu og beina textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem Arnar Gunnlaugsson var kynntur sem nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Fundurinn hófst klukkan 14:00. Útsendingu frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Textalýsinguna frá fundinum má svo finna neðst í fréttinni.

Í gærkvöldi var tilkynnt að Arnar hefði verið ráðinn landsliðsþjálfari. Hann lætur því af störfum hjá Víkingi sem hann hefur stýrt frá haustinu 2018. Arnar gerði Víkinga tvívegis að Íslandsmeisturum og fjórum sinnum að bikarmeisturum.

Arnar stýrir landsliðinu í fyrsta sinn í umspilsleikjum gegn Kósovó í mars um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA. Næsta haust spilar Ísland alla sex leiki sína í undankeppni HM 2026. Íslendingar eru í D-riðli ásamt Frökkum eða Króötum, Úkraínumönnum og Aserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×