Innherji

Sam­kaup verð­metið á yfir níu milljarða í hluta­fjáraukningu verslunar­keðjunnar

Hörður Ægisson skrifar
Kaupfélag Suðurnesja er langsamlega stærsti eigandi Samkaupa, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum, með yfir 51 prósenta hlut. Verslunarkeðjan hefur boðað samruna við Heimkaup sem eigi að styðja við markmið félagsins um vöxt og betri nýtingu innviða.

Samkaup freistar þess núna að sækja sér aukið fjármagn frá núverandi hluthöfum en miðað við áskriftargengið í yfirstandandi hlutafjáraukningu, sem á að klárast í vikunni, er hlutafjárvirði verslunarsamsteypunnar talið vera ríflega níu milljarðar króna. Félagið skilaði talsverðu tapi á síðasta ári sem einkenndist af krefjandi rekstraraðstæðum en mikil samlegðaráhrif eru áætluð með boðuðum samruna Samkaupa og Heimkaupa.

Tengdar fréttir

Væntan­legur sam­runi við Sam­kaup mun breyta dag­vöru­markaðinum mikið

Boðaður samruni Heimkaupa, sem opnaði nýlega verslunina Prís, og Orkunnar við Samkaup mun breyta miklu fyrir dagvörumarkaðinn en hann ætti að hafa í för með sér verulega stærðarhagkvæmni í innkaupum og betri nýtingu á rekstrarfjármunum, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmatsgengi fjárfestingafélagsins SKEL er nokkuð yfir núverandi markaðsgengi, samkvæmt nýrri greiningu, og áætlað er að velta Prís á þeim ríflega fjórum mánuðum sem hún verður starfrækt á þessu ári muni nema um þremur milljörðum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×