Viðskipti innlent

Ráðin sviðs­stjóri hafnarinn­viða

Atli Ísleifsson skrifar
J. Snæfríður Einarsdóttir.
J. Snæfríður Einarsdóttir.

J. Snæfríður Einarsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða hjá Faxaflóahöfnum.

Í tilkynningu segir að með þeirri ráðstöfun sé sviðsstjórum fjölgað um einn og verði þá sex manns í framkvæmdarstjórn fyrirtækisins.

„Snæfríður er Faxaflóahöfnum kunn frá því hún starfaði um tíma sem gæðastjóri til leigu á vegum ráðgjafafyrirtækisins HSE Consulting. Snæfríður hefur breiðan bakgrunn og víðtæka reynslu hún vann áður hjá Samherja, hjá Landvirkjun sem stöðvarvörður, HB-Granda sem forstöðumaður öryggis- og heilsu, HSE Consulting sem ráðgjafi og síðustu tvö ár starfaði Snæfríður sem áhafnarstjóri hjá Eimskip,“ segir í tilkynningunni. 

„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við Faxaflóahafnir og taka í þátt í þeirri innviða þróun sem fram undan er á komandi árum. Það er áskorun og loforð Faxaflóahafna í senn að vinna í takt við þarfir samfélagsins, atvinnulífsins og umhverfisins með grænum, öruggum og skilvirkum áherslum. Þar má nefna uppbyggingu farþegamiðstöðvar á Skarfabakka og landtengingar fyrir skip“ er haft eftir J. Snæfríði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×