„Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Sindri Sverrisson skrifar 4. janúar 2025 15:08 Eva Rut Ásþórsdóttir með fyrirliðabandið í leik gegn Tindastóli á síðustu leiktíð. vísir/HAG Þór/KA hefur tryggt sér liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta með því að fá Evu Rut Ásþórsdóttur frá Fylki.
Eva Rut hefur verið fyrirliði Fylkis síðustu þrjú ár og á heimasíðu Þórs/KA er henni lýst sem kröftugum miðjumanni, líkamlega sterkum, sem geti látið til sín taka jafnt í vörn og sókn. Þá sé hún með góðan leikskilning, marksækin og með frábæra spyrnutækni. Eva Rut, sem er 23 ára, lék 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim fimm mörk. Hún kemur upphaflega úr Aftureldingu en hefur leikið með Fylki undanfarin fimm tímabil. Fylkir féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð en Eva Rut lék 54 leiki fyrir liðið í efstu deild, og skoraði í þeim 12 mörk. Þá hefur hún leikið 46 leiki í næstefstu deild og skorað 14 mörk, og hún lék ung 16 leiki í C-deild með Aftureldingu, og skoraði tvö mörk. „Mikill fengur fyrir okkur“ „Við erum himinlifandi með að fá Evu til okkar í Þór/KA,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA, á heimasíðu liðsins. „Eva er fjölhæf með mikla hæfileika og reynslu sem á eftir að smellpassa inn í okkar lið. Ég er sannfærður um að Eva á eftir að taka næsta skref á sínum ferli hérna hjá okkur ásamt því að gera liðið okkar enn betra. Þetta er mikill fengur fyrir okkur og við hlökkum mikið til að vinna með henni,“ segir Jóhann.
Besta deild kvenna Fylkir Þór Akureyri KA Mest lesið „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn „Við erum of mistækir“ Handbolti Barnalegir og hefðu getað kastað leiknum frá sér Enski boltinn Á stall með Jordan eftir frammistöðu kvöldsins Körfubolti LeBron frá í vikur frekar en daga Körfubolti Atalanta batt enda á sigurgöngu Juventus Fótbolti Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Handbolti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Sjá meira