Innlent

„Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er formaður Heimssýnar.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er formaður Heimssýnar. Vísir/Vilhelm

Formaður hreyfingar þeirra sem eru andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið, segir glórulaust að fara í vegferð sem miðar að inngöngu í sambandið. Ríkisstjórnarflokkarnir hafi komist til valda með því að ræða Evrópumálin sem minnst. 

Fleiri eru andvígir aðild Íslands að ESB en hlynntir samkvæmt könnun Maskínu. Þó vill meirihluti þjóðarinnar atkvæðagreiðslu um málið. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna segir að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild fari eigi síðar fram en árið 2027.

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, hreyfingar þeirra sem eru andvígir inngöngu Íslands í ESB, segir að miðað við niðurstöður könnunarinnar sé glórulaust að leggja í vegferð sem miðar að því að ganga í ESB.

„Það þarf að vera traustur vilji, bæði hjá þjóðinni og Alþingi og ríkisstjórn, til að menn fari af stað í svona lagað. Það sem menn eru að tala um í sambandi við þjóðaratkvæðagreiðslu, er atkvæðagreiðsla um aðildarumsókn, aðildarferli. Það er ferli sem þarf mikinn stuðning heima fyrir og kostar gríðarlegar upphæðir,“ segir Haraldur. 

Evrópusuðið haldi áfram

Hann telur einhverja þeirra sem eru á móti inngöngu í sambandið vilja atkvæðagreiðslu til þess að hægt sé að hætta að ræða málið.

„Því er til að svara að þetta evrópusuð, það hættir ekkert. Við sjáum það í Noregi að það var farið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1972. Evrópusinnar töpuðu henni en þeir byrjuðu strax að suða aftur og fengu aðra atkvæðagreiðslu tuttugu árum seinna. Þeir hafa verið suðandi síðan þá. Þannig suðið hverfur ekki þótt það verði einhver þjóðaratkvæðagreiðsla, því miður er það bara þannig,“ segir Haraldur.

Sópuðu Evrópumálunum undir teppi

Viðreisn og Samfylking hafa í gegnum tíðina verið hlynnt inngöngu í ESB. Haraldur segir flokkana hafa falið þá afstöðu í kosningabaráttunni.

„Samfylkingin gerði það mjög meðvitað. Svo rýkur Viðreisn þarna upp á lokametrunum fyrir kosningar. Það gera þeir með því að segja ekki orð um Evrópumálin, það er nú bara svo einfalt,“ segir Haraldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×