Sport

For­seti FIDE vill ekki refsa Carlsen

Sindri Sverrisson skrifar
Magnus Carlsen er heimsmeistari í hraðskák og deilir nú titlinum með Rússanum Jan Nepomniatsjtsjí, eða Nepo.
Magnus Carlsen er heimsmeistari í hraðskák og deilir nú titlinum með Rússanum Jan Nepomniatsjtsjí, eða Nepo. Getty/Misha Friedman

Arkady Dvorkovich, forseti alþjóða skáksambandsins (FIDE), hefur nú tjáð sig um þá ákvörðun að leyfa jafntefli í úrslitaleik HM í hraðskák og um ummæli Norðmannsins Magnusar Carlsen í myndbandi sem vakið hefur mikla athygli.

Carlsen mætti Rússanum Jan Nepomniatsjtsjí, eða Nepo, í úrslitaleiknum á gamlársdag og að tillögu Carlsen, sem Nepo samþykkti, fengu þeir á endanum að deila heimsmeistaratitlinum. Staðan var þá jöfn í leik þeirra og þeir búnir að semja um þrjú jafntefli í röð.

Bandaríski skákmaðurinn Hans Niemann, sem lýsa mætti sem svörnum óvini Carlsen allt frá því að Carlsen sakaði Niemann um svindl árið 2022, er á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa harðlega ákvörðunina um jafnteflið í úrslitaleiknum.

Kallað eftir rannsókn

Niemann hefur einnig deilt myndbandi af því þegar Carlsen sagði við Nepo, áður en forráðamenn FIDE höfðu ákveðið sig varðandi beiðnina um jafntefli: „Ef þeir hafna þessu þá gerum við bara jafntefli þar til þeir gefast upp.“

Þetta segir Niemann kalla á rannsókn siðanefndar FIDE. „Ég trúi ekki að tveir keppendur sem með óvægnum hætti ásökuðu mig og reyndu að eyðileggja ferilinn minn skuli brjóta reglurnar opinberlega. Kaldhæðnin verður ekki verri,“ skrifaði Bandaríkjamaðurinn meðal annars á Twitter.

Carlsen sá ástæðu til að svara fyrir sig á Twitter og skrifaði þar:

„Ég hef aldrei á mínum ferli samþykkt jafntefli fyrir fram. Á þessu myndbandi er ég að grínast við Ian í aðstæðum þar sem vantar upp á reglur til að skera úr um sigurvegara. Þetta var augljóslega ekki tilraun til að hafa áhrif á FIDE. Orðin féllu í þeim anda að ég taldi að FIDE myndi samþykkja tillögu okkar. Ef eitthvað þá var þetta lélegur brandari í ljósi þessarar alvarlegu stöðu.“

Segir tístið frá Carlsen hafa skýrt málið

Dvorkovich hefur nú tjáð sig um málið í samtali við norska ríkismiðilinn NRK og segir:

„Þetta mál verður rætt af forystu FIDE en ég held að tístið frá Magnusi í gær hafi verið mikilvægt innlegg til að útskýra málið.“

„Persónulega er ég ekki hrifinn af refsingum,“ sagði Dvorkovich sem samkvæmt grein NRK var sá sem að tók ákvörðunina um að heimila jafntefli í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×