Innherji

For­stjóri Kaup­hallarinnar sér fram á mögu­lega fimm ný­skráningar á næsta ári

Hörður Ægisson skrifar
Nú um áramót stendur fjöldi skráðra félaga í Kauphöllinni í 33, þar af 28 á Aðalmarkaðnum og fimm á First North vaxtarmarkaðnum, og hafa þau ekki verið fleiri síðan 2005.
Nú um áramót stendur fjöldi skráðra félaga í Kauphöllinni í 33, þar af 28 á Aðalmarkaðnum og fimm á First North vaxtarmarkaðnum, og hafa þau ekki verið fleiri síðan 2005. VÍSIR/VILHELM

Útlit er fyrir að á næstunni verði framhald á þeirri skráningarbylgju sem hófst árið 2021, meðal annars vegna væntinga um lækkandi vaxtastig sem ætti að skila sér í bættum markaðsaðstæðum, og forstjóri Kauphallarinnar segist því gera ráð fyrir að þrjú til fimm félög muni ráðast í nýskráningar á nýju ári. Hann brýnir stjórnvöld til þess að skoða hvata til fjárfestinga við það sem best gerist í okkar nágrannaríkjum eigi að takast að tryggja áframhaldandi uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins.


Tengdar fréttir

Stjórnvöld vilja ekki bjóða erlendum fjár­festum upp á sér­stöðu Ís­lands

Ef það er raunverulega markmiðið að auka beina erlenda fjárfestingu og skapa umhverfi sem eflir hlutabréfamarkaðinn þá væri réttast að selja minnihluta í Landsvirkjun samhliða skráningu á markað og eins opna meira á erlent eignarhald í sjávarútvegi, að mati framkvæmdastjóra eins stærsta lífeyrissjóðs landsins. Þótt Kauphöllin fari stækkandi þá endurspegli hún ekki vel íslenska hagkerfið á meðan stjórnvöld halda verndarhendi yfir þeim atvinnugreinum sem eru með sérstöðu á heimsvísu.

Kaup­höllin kallar eftir nýrri um­gjörð utan um er­lent eignar­hald í sjávar­út­vegi

Forsvarsmenn íslensku Kauphallarinnar mæla fyrir breytingum á umgjörð utan um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem núna dregur úr gagnsæi og girðir í reynd nánast fyrir aðkomu slíkra fjárfesta, og vilja að regluverkið um erlent eignarhald verði svipað og gildir um flugrekstur hér á landi. Núverandi fyrirkomulag hefur meðal annars valdið því að íslensku sjávarútvegsfélögin eru ekki gjaldgeng í alþjóðlegar hlutabréfavísitölur ólíkt öðrum stórum skráðum félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×