Veður

Appel­sínu­gular við­varanir og vegir víða lokaðir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Vegir eru lokaðir víða um land.
Vegir eru lokaðir víða um land. vísir/vilhelm

Jólahretið er hressilegt þennan jóladagsmorgun. Búast má við suðvestanátt í dag með hvassviðri eða stormi víða með dimmum éljum, einkum um landið sunnan- og vestanvert. 15-25 m/s og frosti frá 0 og upp í 5 stig.

Á vef Veðurstofunnar má sjá að gefnar hafa verð út gular og appelsínugular viðvaranir víða um land. Appelsínugul viðvörun er í gildi á Suðurlandi til klukkan sex í kvöld, í Faxaflóa til klukkan þrjú í dag og í Breiðafirði til tvö í dag. Einnig eru gular viðvaranir í gildi þangað til í fyrramálið á Vestjörðum, Suðausturlandi, á Ströndum og Norðurlandi vestra og á höfuðborgarsvæðinu.

Vegir eru einnig víða lokaðir. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að Holtavörðuheiði sé lokað vegna veðurs og að athugað verður með opnun þegar líður á daginn. Öxnadalsheiði er einnig lokuð vegna snjóa en unnið er að mokstri. Hellisheiði er einnig lokuð.

Vel verður fylgst með vegaopnunum á Vísi en ökumenn eru einnig hvatti til að skoða vefinn umferðin.is vel áður en langt er af stað í langferð og á meðan ferðalagi stendur. Þar eru allar upplýsingar um færð um leið og þær berast.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að á morgun, á öðrum degi jóla, sé útlit fyrir stífa suðvestanátt en hvassviðri með suðurströndinni. Þá hlýni heldur og úrkoman fer yfir í slyddu og jafnvel rigningu sunnanlands. Snjókoma eða él í öðrum landshlutum en að mestu þurrt á Austurlandi.

Á föstudag er síðan spáð minnkandi suðvestanátt með éljum, en þurru veðri norðaustantil.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag (annar í jólum):

Suðvestan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma með köflum, en 13-20 og rigning við suðurströndina. Úrkomulítið á Austurlandi. Hlýnandi, hiti víða 0 til 5 stig síðdegis.

Á föstudag:

Suðvestan 8-15 og él, en þurrt að mestu um landið norðaustanvert. Kólnar í veðri.

Á laugardag:

Breytileg og síðar og síðar norðlæg átt með éljum, en styttir upp sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Norðlæg átt og dálítil él á víð og dreif. Kalt í veðri.

Á þriðjudag (gamlársdagur):

Norðlæg eða breytileg átt bjart veður, en dálítil él austast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×