Lífið

Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins eru komnar í jólaskapið.
Stjörnur landsins eru komnar í jólaskapið. SAMSETT

Hátíðarandinn svífur yfir landsmönnum og aðeins einn dagur til jóla. Stjörnur landsins eru sannarlega komnar í jólaskapið og voru duglegar að deila skemmtilegum augnablikum á samfélagsmiðlum yfir liðna viku.

Jólatónleikar

Tónlistarkonan Gugusar fékk að framleiða sína eigin útgáfu af laginu Sleðalestin á jólatónleikum Valdimars um helgina í Hörpu.

HúbbaBúbba strákarnir báðu um góða strauma áður en þeir stigu á svið á Jólagestum Björgvins.

Rúrik Gíslason birti mynd frá IceGuys tónleikunum og fór yfir síðustu daga.

Stórstjarnan Laufey kom fram í spjallþætti Graham Norton og naut sín vel en Júnía tvíburasystir hennar hannaði atriðið. Þær stöllur eru báðar komnar til Íslands yfir jólin. 

Svala er þakklát, auðmjúk og meyr eftir síðustu Jólagestina.

Herra Hnetusmjör reykti vindil í Metallica bol uppi á sviði. 

Jóla skvísulæti

Áhrifavaldurinn Þorbjörg Kristinsdóttir fór í jólalegasta göngutúr ársins með hundinn sinn.

Fyrirsætan Bryndís Líf nýtur lífsins í Kaliforníu og sat fyrir í auglýsingaherferð.

Raunveruleikastjarnan Ína María dró fram pelsinn í tilefni af hátíðunum. 

Áhrifavaldurinn Lára Clausen er glæsileg á meðgöngunni.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einars heldur áfram að vera ein mesta gella landsins nú í svörtum og gegnsæjum síðkjól. 

Fanney Dóra áhrifavaldur skálar fyrir jólunum á Snaps. 

Fyrirsætan Birta Abiba er mætt til Íslands og komin í jólagírinn en hún er búsett í Los Angeles. 

Einn best klæddi maður landsins Gummi Kíró minnir fólk á að njóta síðustu daga fyrir jóla. Um að gera að taka það með sér inn í Þorláksmessuna!

Tímamót

Viðskiptafræðingurinn og ofurskvísan Andrea Röfn og fótboltakappinn Arnór Ingvi fögnuðu átta ára sambandsafmæli. Saman eiga þau tvö börn.

Hildur Sif Hauksdóttir fagnaði afmæli sínu í hvítum skvísukjól.

Fyrrum ráðherra Áslaug Arna fór yfir síðustu daga en hún afhenti lyklana að ráðherrastólnum um helgina. Áslaug átti viðburðaríka helgi og skemmti sér meðal annars á Gilligogg með Stefáni Einari, Komið Gott hlaðvarpsstjörnunum Kristínu og Ólöfu og fleiri góðum. 

Markaðsstjórinn og þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarson eignuðust frumburð sinn í haust. Hann fékk nafnið Helgi Snær fyrr í desember og njóta þau þessara fyrstu jóla sem þriggja manna fjölskylda í botn. 

Eurovision stjarnan Diljá Pétursdóttir fagnaði afmæli sínu.

Nýjasta ríkisstjórnin birti sögulega hópknús mynd. 

Á ferð og flugi

Leikkonan og dansarinn Sólbjört fór til Japan yfir jólinn ásamt eiginmanni sínum Einari, jafnan þekktur sem Einar úr Hatara, og dóttur þeirra. Ferðalagið er algjört ævintýri. 

Söngkonan Sigga Ózk birti myndaaseríu frá Noregi. Hún verður með tónleika í Tjarnarbíói í lok desember. 

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnar jólunum á bikiníi. 

Jólaandinn

Sóldís Ívarsdóttir Ungfrú Ísland heimsótti Barnaspítala Hringsins á dögunum.

„Það var ómetanlegt að fá að deila smá gleði og hlýju með þeim og vona að það hafi bætt daginn þeirra, því þau sannarlega bættu daginn minn,“ skrifar hún á Instagram við myndafærslu af heimsókninni.

Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson naut sín í matarboði hjá lífskúnstnernum Ármanni Reynissyni. 

Það er allt að smella fyrir jólin hjá Elísabetu Gunnars tískubloggara og áhrifavaldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.