Innlent

Síðasti fundur starfsstjórnar og rýnt í ráðherrakapalinn

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum fjöllum við um ríkisstjórnarfundinn sem fram fór í morgun en sá var að öllum líkindum sá síðasti hjá þessari fráfarandi ríkisstjórn. 

Við ræðum við ráðherrana og spyrjum þá út í framtíðaráform. 

Þá heyrum við í álitsgjafa um væntanlega ríkisstjórn sem verður líklegast kynnt á morgun og reynum að leggja ráðherrakapalinn.

Að auki verður staðan tekin á RS vírusnum sem nú geisar en mikið álag hefur verið á barnaspítalanum vegna þess. 

Í íþróttunum fjöllum við síðan um góðan árangur Víkinga í Evrópuboltanum en það kemur í ljós síðar í dag hverjum þeir mæta í næstu umferð.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 20. desember 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×