Erlent

Mangione líka á­kærður af alríkissaksóknurum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Luigi Mangione í New York.
Luigi Mangione í New York. Vísir/EPA

Luigi Mangione, sem er grunaður um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, bana hefur verið ákærður af alríkissaksóknurum í New York fyrir manndráp. 

Hann hefur líka verið ákærður fyrir að sitja um Thompson og að nota ólöglegan hljóðdeyfi þegar hann skaut hann. Mangione var fyrr í vikunni einnig ákærður af héraðssaksóknara í New York-borg fyrir manndráp og hryðjuverk.

Í frétt Reuters segir að Mangione hafi verið birtar ákærurnar í dag. Hann er sakaður í ákærunni um að hafa varið mánuðum í að skipuleggja drápið. Þá er í fréttinni einnig fjallað um dagbók sem lögreglumaður fann í fórum hans þar sem Mangione lýsir hatri sínu á sjúkratryggingabransanum og ríkum forstjórum sérstaklega.

Þá segir einnig í fréttinni að þegar alríkissaksóknarar leggi fram ákæru sé líklegra að hægt verði að óska eftir dauðarefsingu fyrir Mangione. Dauðarefsing var afnumin í New York ríki fyrir mörgum áratugum.

Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare, var skotinn til bana fyrir utan hótel á Manhattan-eyju í New York-borg, 4. desember, þar sem Thompson var að halda árlega fjárfestaráðstefnu. Mangione er gefið að sök að hafa skotið hann til bana og flúið vettvang á hjóli í Central Park-almenningsgarð.

Mangione fannst loks á McDonald‘s stað í Altoona í Pennsylvaníu-ríki um fimm dögum síðar þar sem hann var handtekinn og færður í skýrslutöku. Hann hefur verið í haldi í New York frá því á fimmtudag en hann var framseldur þaðan frá Pennsylvaníu þar sem hann var handtekinn.


Tengdar fréttir

Óvænt tenging lögmanna í tveimur stærstu málum ársins

Dómsmál Sean „Diddy“ Combs hefur verið fyrirferðarmikið á árinu. Luigi Mangione sem skaut forstjóra UnitedHealtcare til bana í upphafi mánaðar hefur þó eiginlega trompað Diddy. En mennirnir tveir og mál þeirra tengjast á skemmtilegan hátt.

Skrifaði um að drepa „baunateljara“

Lögregluþjónar sem handtóku Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, fundu í fórum hans stílabók. Þar hafði hann meðal annars skrifað um morðið, réttlætingu á því og hvernig hægt væri að framkvæma það.

Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal

Luigi Mangione, sem er grunaður um að skjóta mann til bana á götum New York-borgar í síðustu viku, öskraði að fjölmiðlafólki þegar hann var leiddur fyrir dómara í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×