Enski boltinn

Manchester United reynir að skrúfa fyrir lekann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruben Amorim ræðir málin við Amad Diallo í leiknum á móti Manchester City en Diallo átti síðan eftir að ráða úrslitum í leiknum.
Ruben Amorim ræðir málin við Amad Diallo í leiknum á móti Manchester City en Diallo átti síðan eftir að ráða úrslitum í leiknum. Getty/Robbie Jay Barratt

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er sagt ætla að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að upplýsingar um byrjunarlið United leki út löngu fyrir leiki liðsins.

Upplýsingar um byrjunarliðið á móti Manchester City láku út um sólarhring fyrir leik.

Ruben Amorim, þjálfari liðsins, viðurkenndi að þetta væri „ekki gott mál“ þegar hann var spurður út í lekann eftir leikinn á móti City. Hann hefði eflaust verið miklu pirraðri ef leikurinn hefði tapast.

ESPN hefur eftir heimildarmönnum sínum að portúgalski þjálfarinn hafi samt ekki allt of miklar áhyggjur af þessu en þetta lekavandamál hefur verið lengi til vandræða á Old Trafford.

Það hefur mikið gengið á hjá félaginu síðustu ár og það er mikill áhugi hjá bæði fjölmiðlamönnum og samfélagsmiðlum að skúbba fréttum úr innsta hring.

United hefur minnt starfsfólk sitt á mikilvægi þess að passa upp á það að viðkvæmar liðsupplýsingar leki ekki út til fjölmiðla.

Liðin tilkynna venjulega byrjunarlið sín opinberlega 75 mínútum fyrir upphafsflaut.

Samkvæmt fyrrnefndum heimildum þá telja forráðamenn United að ekki sé um leikmann eða starfsmann að ræða heldur séu upplýsingarnar að leka út með öðrum hætti.

Argentínski leikmaðurinn Alejandro Garnacho og þá aðallega bróðir hans átti að vera sökudólgurinn en United hefur þvertekið fyrir það.

„Ég þekki þessa sögu. Ég veit ekki hvar vandamálið liggur. Ég held að það sé nánast ómögulegt að laga þetta í dag því það eru svo margir sem vinna hjá félaginu. Leikmenn tala við umboðsmenn eða aðrir við vini sína. Það er erfitt að finna sökudólginn. Þetta er ekki gott mál en við verðum bara að halda áfram og sjá þá til hvort þeir komast byrjunarliðinu líka fyrir næsta leik,“ sagði Ruben Amorim.

Manchester United mætir næst Tottenham á fimmtudaginn í átta liða úrslitum enska deildabikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×