Sala eigna og bjartari rekstraráætlun hækkar verðmatið á Heimum
![Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, hefur sagt að félagið muni áfram nýta tækifæri til eignasölu sé hún skynsamlegt út frá hagsmunum hluthafa. Eftir mikla hækkun á hlutabréfaverði Heima að undanförnu er markaðsvirði félagsins núna í fyrsta sinn í nokkurn tíma hærra en bókfært virði eigin fjár.](https://www.visir.is/i/119FD583818ADBF6D00FBDE450D836B8267A8D69A27FF777FE0CD7C802F4A2B1_713x0.jpg)
Þrátt fyrir mikla siglingu á hlutabréfaverði Heima í Kauphöllinni að undanförnu, meðal annars drifið áfram af endurkaupum, væntingum um frekari vaxtalækkanir og bættri rekstrarafkomu, þá er fasteignafélagið enn nokkuð undirverðlagt á markaði, að mati greinenda. Verðmatið á Heimum hefur verið hækkað en félagið gaf nýlega út jákvæða afkomuviðvörun og seldi frá sér eignir utan kjarnasvæða.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/450CA2BFFCFC73E94575CA4FD06F82836FFAF1F2DAC7C13726AB9AD79320532F_308x200.jpg)
Erlendur sjóður fjárfesti í Alvotech fyrir meira en tvo milljarða
Hlutabréfasjóðir hjá Redwheel, alþjóðlegt sjóðastýringarfélag sem hefur nýverið byggt upp stöðu Heimum, fjárfestu á sambærilegum tíma fyrir jafnvirði meira en tvo milljarða króna í líftæknilyfjafélaginu Alvotech á íslenska markaðinum undir lok síðustu viku. Eftir skarpt verðfall á hlutabréfaverði félagsins hefur það rétt úr kútnum að undanförnu samtímis meðal annars fregnum um aukið innflæði erlendra sjóða í bréfin og góðum gangi í sölu á stærsta lyfi Alvotech í Bandaríkjunum.