Körfubolti

Bene­dikt: Hjartað í þeim er risa­stórt

Arnar Skúli Atlason skrifar
Benedikt Guðmundsson tókst að koma sínu liði upp á tærnar eftir tvö töp á móti Keflavík.
Benedikt Guðmundsson tókst að koma sínu liði upp á tærnar eftir tvö töp á móti Keflavík. Vísir/Anton Brink

Benedikt Guðmundsson þjálfari Tindastóls, var að vonum kátur eftir sigur liðsins á Njarðvíkingum í kvöld.

„Virkilega ánægður frábær liðs frammistaða. Strákarnir stigu upp og náðu að gera þetta leik á fullum velli sem við urðum að gera. Við vorum í vandræðum þegar við vorum að slást við þá á hálfum vell, ánægður með hjartað í liðinu,“ sagði Benedikt.

Benedikt var sáttur með hvað liðið var heilsteypt allan leikinn og hvernig þeir stýrðu umferðinni?

„Svona 80 prósent en auðvitað voru slæmir kaflar eins og eru í öllum leikjum, við erum hrikalega litlir og ég held ég hafi aldrei teflt fram jafn lágvöxnu eins og í þessum leik í kvöld,“ sagði Benedikt.

„Við þurftum að finna einhverjar leiðir, til að sprengja leikinn upp og gera þetta run and gun þegar það tókst þá vorum við flottir. Þeim tókst að stjórna einhverjum mínútum líka og þá voru þeir að koma til baka. Þetta var svolítið baráttan um að stjórna tempóinu og leiknum. Þeir eru með nýjan mann sem við þekktum illa og hann skoraði 27 stig en við munum kunna betur á hann þá,“ sagði Benedikt.

Valur bíður í lokaleiknum hjá Stólunum fyrir jól. Adomas Drungilas verður þá kominn aftur en Sadio Doucoure verður sennilega ekki með.

„Drungilas kemur aftur og er búinn að taka út sitt bann en ég efa að Sadio verður eitthvað tilbúinn fyrir næsta leik. Við þurfum bara að grinda í gegnum þennan desember mánuð. Við erum búinn að vera í meiðslum veikindum og bönnum, en menn hafa verið að gefa sig í verkefnið engu að síður. Sadio var að skjóta með vinstri í seinasta leik, Pétur er á tvöföldum ökkla, Raggi búinn að vera veikur en spilar samt. Við notum þetta ekki sem afsakanir en þegar menn gefa sér í verkefnið verðum við að hrósa þeim og þeir eiga risa hrós skilið og hjartað í þeim er risastórt,“ sagði Benedikt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×