Lífið

Út­tekt á merki­legu orð­færi Ingu Sæ­land

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Fréttamaður heldur á útprentuðu eintaki af frétt frá 2016. Í þessari frétt birtist fyrsta skráða tilvikið af notkun Ingu á textabroti úr Stuðmannalaginu Sigurjón digri. Í það minnsta eftir því sem fréttamaður kemst næst.
Fréttamaður heldur á útprentuðu eintaki af frétt frá 2016. Í þessari frétt birtist fyrsta skráða tilvikið af notkun Ingu á textabroti úr Stuðmannalaginu Sigurjón digri. Í það minnsta eftir því sem fréttamaður kemst næst.

„Við erum komin til að sjá og sigra, Sigurjón digra,“ sagði Inga Sæland, sigurreifur formaður Flokks fólksins, á nýliðna kosninganótt þegar tölur tóku að birtast. Þarna kvað við kunnuglegan tón í Ingu, sem ítrekað vitnar í hið ástsæla Stuðmannalag þegar andinn kemur yfir hana.

Eftir því sem fréttamaður kemst næst er elsta skráða tilfellið af notkun Ingu á textabrotinu úr þessari frétt sem birtist á Vísi á kosninganótt 2016, þegar Flokkur fólksins bauð fyrst fram lista. 

„Við erum komin til að vera. Við erum komin til að sjá og sigra, Sigurjón digra,“ sagði Inga þá í samtali við fréttamann, og vísaði í lagið Sigurjón digri sem flokksmenn höfðu verið að syngja á kosningavökunni í Faxafeni „þar sem harðasti kjarninn var enn í góðum gír,“ segir í fréttinni. Inga og félagar höfðu ekki erindi sem erfiði í þeim kosningum en sigldu inn á þing í kosningum ári síðar.

Ljóst er að textabrotið er Ingu tamt. Á ferli hennar sem þingmaður hefur hún ítrekað gripið til þess í pontu á Alþingi, eins og tekið er saman í fyrsta annál fréttastofu sem horfa má á hér fyrir neðan. Samantektin hefst um það bil á mínútu 2:30.

Þá sveif andi Stuðmanna einnig yfir vötnum á fyrsta blaðamannafundi „Valkyrjanna“ svokölluðu, sem nú standa í stjórnarmyndunarviðræðum, á dögunum. Þar vísaði Inga ekki aðeins í Sigurjón digra heldur söng einnig brot úr laginu Íslenskir karlmenn, við undirtektir Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Fréttamaður má svo til með að minna á ítarlega umfjöllun um annan áberandi frasa úr orðabók Ingu Sæland, sem birtist hér á Vísi í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.