Innlent

Mega hafa einn sund­laugar­vörð á vakt í Vík í Mýr­dal

Kjartan Kjartansson skrifar
Sundlaugin í Vík í Mýrdal er sambyggð íþróttahúsi og líkamsræktarstöð. Þar verður aðeins einn laugarvörður að störfum í vetur og fram á vor.
Sundlaugin í Vík í Mýrdal er sambyggð íþróttahúsi og líkamsræktarstöð. Þar verður aðeins einn laugarvörður að störfum í vetur og fram á vor. Mýrdalshreppur

Mýrdalshrepp var heimilt að ákveða að hafa aðeins einn sundlaugarvörð á vakt stærstan hluta ársins. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um að synja sveitarfélaginu um leyfi til þess.

Heilbrigðiseftirlitið neitaði að samþykkja tilkynningu Mýrdalshrepps í ágúst um að sveitarfélagið ætlaði að nýta sér heimild til þess að hafa aðeins einn starfsmanna á vakt í sundlaug Mýrdalshrepps í Vík frá 1. september til 31. maí.

Sundlaugin er í sameiginlegu húsnæði með íþróttahúsi og líkamsræktaraðstöðu. Hreppurinn tilkynnti á sama tíma að hann ætlaði að nýta heimild til þess að hafa líkamsræktarstöðina ómannaða.

Á meðal þess sem eftirlitið setti fyrir sig var að íþróttasalurinn gæti ekki verið ómannaður vegna öryggis barna sem nýttu sér hann. Gestir og börn gætu leitað til laugarvarðar ef enginn væri á staðnum og truflanir gætu haft neikvæð áhrif á hæfni laugarvarðar til þess að fylgja með sundlauginni og tryggja öryggi þar. Því væri ekki raunhæft að hafa aðeins einn starfsmann á vakt.

Ekki „flókin“ sundlaug

Umhverfisráðuneytið neitaði að blanda sér í ágreining sveitarfélagsins og heilbrigðiseftirlitsins og taldi deiluna frekar eiga heima hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Úrskurðarnefndin féllst ekki á mat heilbrigðiseftirlitsins að uppbygging sundlaugarinnar í Vík teldist „flókin“ í skilningi reglugerðar sem kveður á um aukna laugargæslu fyrir sundstaði sem séu lengri en fjörutíu metrar eða með flókna uppbyggingu.

Þrátt fyrir að í Vík væri vaðlaug, heitur pottur, rennibraut, kaldur pottur og gufubað taldi úrskurðarnefndin að fyrst og fremst bæri að horfa á sundlaugarsvæðið sjálft. Ágæt yfirsýn væri yfir sundlaugina sem væri aðeins 16,7 metrar að lengd.

Þá samþykkti nefndin rök hreppsins um að vakt og afgreiðsla sundlaugarinnar væri í sama rými með yfirsýn yfir laugina, nýtt myndavélakerfi hefði verið sett upp og að laugarverður kæmi ekki til með að sinna öðrum verkefnum. Þá væri til staðar fyrirfram skilgreindur aðili sem hann gæti hringt í þyrfti hann á liðsauka að halda.

Benti úrskurðarnefndin sveitarfélaginu á að hygðist það hafa íþróttasal og líkamsræktarstöð ómannaða yrði það að setja á átján ára aldurstakmark fyrir notendur aðstöðunnar sem væru ekki í fylgd með fullorðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×