Erlent

Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal

Jón Þór Stefánsson skrifar
Luigi Mangione öskraði á leið í dómsal, en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað hann sagði.
Luigi Mangione öskraði á leið í dómsal, en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað hann sagði. Getty

Luigi Mangione, sem er grunaður um að skjóta mann til bana á götum New York-borgar í síðustu viku, öskraði að fjölmiðlafólki þegar hann var leiddur fyrir dómara í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna í dag.

Samkvæmt BBC heyrðist ekki vel hvað Mangione kallaði, en hann á þó að hafa sagt:

„[…] er skammarlegt fyrir vitsmuni Bandaríkjamanna“

Þegar hann var leiddur úr dómshúsinu var hann þögull.

Mangione er talinn hafa myrt Brian Thompson, einn forstjóra UnitedHealthcare eins stærsta sjúkratryggingafélags Bandaríkjanna, verið á flótta þangað til hann var handtekinn í útibúi McDonalds í Pennsylvaníu-ríki.

Mangione var leiddur fyrir dóm þar sem krafa ákæruvaldsins um að framselja hann frá Pennsylvaníu til New York-ríkis var tekin fyrir. Verjandi hans, sem var skipaður af dómstólnum, mótmælir þeirri beiðni. Niðurstaða varðandi framsalið liggur ekki fyrir og það gæti tekið marga daga, jafnvel mánuði að fá úr skorið um það.

Dómarinn hafnaði því að Mangione myndi fá að ganga laus gegn tryggingu.

„Ekki segja eitt einasta orð“

Samkvæmt New York Times sagði Mangione lítið í réttarsalnum. Fram hefur komið að hann er talinn hafa klæðst grímu nánast linnulaust frá því að hann á að hafa framið morðið þangað til að hann var handtekinn.

Um er að ræða sóttvarnagrímu. Verjandi Mangione sagði að mögulega hafi hann verið með umrædda grímu vegna ótta við Covid-19. Þá mun Mangione hafa gripið inn í og sagt: „Ég kom með grímuna.“

En þá hafi lögmaðurinn aftur tekið orðið, sussað á hann og sagt: „Nei, nei, Ekki segja eitt einasta orð.“


Tengdar fréttir

Þetta er maðurinn sem er grunaður um launmorðið

Maður sem er grunaður um launmorð á götum New York-borgar í síðustu viku heitir Luigi Mangione. Hann var handtekinn í borginni Altoona í Pennsylvaníuríki í dag vegna meintra vopnalagabrota. Hann sást á skyndibitastaðnum McDonalds þar sem hann var með handskrifaða stefnuyfirlýsingu í fórum sér þar sem sjúkratryggingafyrirtæki eru harðlega gagnrýnd.

Morðið afhjúpar kraumandi reiði í garð tryggingafélaga

Launmorðið á forstjóra stærsta sjúkratryggingafélagi Bandaríkjanna hefur vakið alls kyns viðbrögð. Stjórmálamenn og fólk í atvinnulífinu votta fjölskyldu Brian Thompson samúð sína, á sama tíma og morðið afhjúpar reiði meðal borgaranna gagnvart kerfinu, sem hefur kraumað undir niðri um langt skeið. 

Skrifaði á skothylki sem urðu eftir

Maðurinn sem skaut forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna til bana á götum New York í gær, er sagður hafa skilið eftir skilaboð á patrónum, eða skothylkjum, skota sem hann skaut Brian Thompson með. Þá hafa verið birtar nýjar myndir af manninum, þær fyrstu þar sem andlit hans sést, en maðurinn gengur enn laus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×