Leikjavísir

Al­dís Amah til­nefnd til BAFTA-tölvuleikjaverðlaunanna

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Aldís Amah Hamilton leikkona. 
Aldís Amah Hamilton leikkona.  Vísir/Vilhelm

Aldís Amah Hamilton leikkona hefur verið tilnefnd til tölvuleikjaverðlauna BAFTA fyrir leik sinn í tölvuleiknum Senua’s Saga: Hellblade II sem besti leikari í aukahlutverki.

Tilnefningar til BAFTA-tölvuleikjaverðlaunanna voru birtar í dag en RÚV greindi fyrst íslenskra miðla frá tilnefningunni. Þar segir að Senua’s Saga: Hellblade II fjalli um keltneska stríðskonu og gerist á Íslandi á landnámsöld. Aldís fer með hlutverk stríðskonunnar Ástríðr í leiknum.

Tölvuleikurinn fær alls tíu tilnefningar til verðlaunanna. Þau voru fyrst veitt árið 2004 og fara fram þann 8. apríl á næsta ári. 

Aldís Amah er meðal annars þekkt fyrir leik sinn í þáttaröðunum Svörtu söndum, Föngum, Kötlu og Broti. 


Tengdar fréttir

Fjallkonan í ár er Aldís Amah Hamilton

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hófst á Austurvelli í dag. Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni. Í ár er fjallkonan Aldís Amah Hamilton.

Mun gráta þegar nýr eigandi fær lyklana í hendurnar

Leikkonan Aldís Amah Hamilton hefur sett íbúð sína á Ásvallagötu í vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Aldís segist eiga margar og góðar minningar úr íbúðinni, það verði tilfinningaþrungin stund þegar hún afhendi nýjum eiganda lyklana.

Skráði sig í leik­listar­nám eftir að hafa reynt við suður-kóreska Idolið

Leikkonan Aldís Amah Hamilton sem slegið hefur í gegn í þáttunum Svörtu söndum á Stöð 2, segir það ekki endilega hafa legið beinast við að hún færi í leiklist. Hún komst til að mynda aldrei inn í nemendasýningu Verzlunarskólans. Eftir að dómari í suður-kóreska Idolinu sagði henni að hún væri með leikhúslega rödd ákvað hún þó að skrá sig í prufur fyrir leiklistarnám við Listaháskólann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.