Innlent

Ó­á­nægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægi­vald“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Eyrún Helga Aradóttir formaður foreldrafélags Laugarnesskóla ræddi ákvörðun borgaryfirvalda í Kvöldfréttum. 
Eyrún Helga Aradóttir formaður foreldrafélags Laugarnesskóla ræddi ákvörðun borgaryfirvalda í Kvöldfréttum.  Vísir

Formaður foreldrafélags Laugarnesskóla segir skólasamfélagið allt hafa barist fyrir að grunnskólar í Laugarneshverfi yrðu stækkaðir í stað þess að byggður yrði safnskóli fyrir unglingadeildir í hverfinu. Hún segir skólahverfið rótgróið og farsælt og skólasamfélagið vilji halda í þá skólagerð. 

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur lagt aftur til að byggður verði safnskóli fyrir áttunda til tíund bekk í Laugarneshverfi og yngri bekkirnir skiptist niður á þá skóla sem fyrir eru. 

Foreldrar í Laugarneshverfi hafa lengi verið í viðræðum við borgaryfirvöld um skólabyggingar í hverfinu. Eyrún Helga Aradóttir formaður foreldrafélags Laugarnesskóla er þeirra á meðal. 

„Í fyrsta lagi líst okkur náttúrlega bara mjög vel á að það sé búið að taka ákvörðun. Að það sé komin einhver ákvörðun í þessu máli. En að því sögðu þá var tekin ákvörðun fyrir tveimur árum síðan og sú ákvörðun hugnaðist okkur betur heldur en þessi nýja ákvörðun.“

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti að falla frá hugmyndum sínum um að skipta Laugarneshverfi upp í nokkur skólahverfi og byggja við þá grunnskóla sem fyrir eru. Þess í stað verði byggður safnskóli í Laugardal fyrir unglingadeildir Laugalækjar- og Langholtsskóla. 

Sjá einnig: Laugarneshverfi verður áfram eitt skólahverfi

Fyrri áformin höfðu verið samþykkt hjá skóla- og frístundaráði og hjá borgarráði áður en ákveðið var að falla frá þeim. „Og þar með héldum við að málið væri komið í höfn. En svo var bara svo sannarlega ekki. Borgin ákvað annað og borgin hefur valdið,“ segir Eyrún. 

Af hverju líst ykkur ekki vel á safnskóla?

„Þetta hefur ekkert endilega með safnskólann að gera sem slíkan. Hér er mjög rótgróið og farsælt skólahverfi. Þetta eru mjög farsælir skólar sem byggja þetta hverfi. Við vildum halda í þá skóla og þá skólagerð sem hér er, af því að hún er farsæl.“

Munið þið, þrátt fyrir þetta, una þessari ákvörðun borgaryfirvalda?

„Við höfum barist mjög lengi við borgina, og ekki bara við foreldrar heldur allt skólasamfélagið,“ segir Eyrún. Skólastjórnendur, kennarar, annað starfsfólk og nemendur hafi barist fyrir því að skólarnir yrðu stækkaðir.

„Við börðumst við borgina með viljann að vopni. Við ráðum ekki við þetta ægivald. Þannig að eins og staðan er núna verðum við bara að halda áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×