Lífið

Ragga Sveins flutt heim og selur Arnarneshöllina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ragga Sveins er flutt á klakann.
Ragga Sveins er flutt á klakann.

Ragnhildur Sveinsdóttir, betur þekkt sem Ragga Sveins, hefur sett glæsihús sitt á Arnarnesi á sölu. Um er að ræða tæplega 500 fermetra einbýlishús á tveimur með stórbrotnu útsýni. Ásett verð er 590 milljónir.

Ragnhildur er fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára Guðjohnsen. Þau skildu árið 2017 eftir 23 ára samband. Saman eiga þau fjögur börn, þrjá drengi og eina stúlku. 

Ragnhildur flutti nýverið til Íslands eftir áralanga búsetu erlendis, síðast í Malmö í Svíþjóð. Hún hóf störf sem pilateskennari hjá Eldrún Pilates eftir að hafa lokið kennaranámi hjá Exhale Pilates London fyrir skemmstu. Hún hefur verið viðloðandi heilsu- og íþróttabransann í mörg ár og kennt pilates bæði í London og Malmö. Sjálf hefur hún stundað pilates í um tólf ár. 

Bíósalur, vínherbergi og líkamsrækt

Umrætt hús Ragnhildar var byggt árið 2008 er allt hið vandaðasta. Eignin einkennist af miklum munaði og glæsileika og er innréttuð af mikilli smekkvísi. 

Húsið stendur á glæsilegri sjávarlóð á Arnarnesi.Croisette home

Á vef Croisette home kemur fram að húsið er á tveimur hæðum. Efri hæðin skiptist í stofu, borðstofu og eldhús, sem flæða saman í eitt í opnu og björtu alrými með gólfsíðum gluggum meðfram norðurhlið hússins, svo hægt sé að njóta útsýnisins til hins ýtrasta. Stór arinn prýðir rýmið og gefur því mikið lúx­us yf­ir­bragð. 

Eld­húsið er rúm­gott með stórri eyju og gaselda­vél og stein á borðum. Innréttingin er í hlýlegum súkkulaðibrúnum lit líkt og aðrar innréttingar hússins.

Samtals eru fimm svefnherbergi og fimm baðherbergi, þar af hjónasvíta með rúmgóðu fataherbergi og glæsilegu baðherbergi með tveimur frístandandi vöskum og tvöfaldri sturtu.

Á neðri hæðinni má meðal annars finna líkamsræktarsal með gufubaði, vínherbergi, setustofu og stóran bíósal sem er tilbúinn til lokafrágangs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.