Fótbolti

Mbappé fékk tvo í ein­kunn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kylian Mbappé í öngum sínum eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu gegn Liverpool.
Kylian Mbappé í öngum sínum eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu gegn Liverpool. getty/Chris Brunskill

Kylian Mbappé átti ekki sinn besta leik þegar Real Madrid laut í lægra haldi fyrir Liverpool, 2-0, í Meistaradeild Evrópu í gær og fékk enga miskunn í frönskum fjölmiðlum.

Mbappé spilaði á vinstri kantinum á Anfield í gær en hinn 21 árs Conor Bradley hafði góðar gætur á frönsku stórstjörnunni. 

Hann fékk samt kjörið tækifæri til að jafna þegar Real Madrid fékk vítaspyrnu eftir klukkutíma. Írski landsliðsmarkvörðurinn Caoimhin Kelleher sá hins vegar við Mbappé og varði spyrnu hans.

Mbappé fékk ekki merkilega umsögn eftir leikinn og í franska blaðinu L'Équipe fékk hann aðeins tvo í einkunn, af tíu mögulegum, fyrir frammistöðu sína.

Hinn 25 ára Mbappé kom til Real Madrid á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain fyrir tímabilið. Hann hefur skorað níu mörk í átján leikjum fyrir Real Madrid í vetur en aðeins eitt í Meistaradeildinni.

Þar situr Real Madrid í 24. sæti með einungis sex stig. Átta efstu liðin komast beint í sextán liða úrslit en liðin í sætum 9-24 fara í umspil.


Tengdar fréttir

„Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“

Caoimhin Kelleher hafði kannski ekki mikið að gera í marki Liverpool í kvöld þegar liðið frá Bítlaborginni lagði Evrópumeistara Real Madríd 2-0 og er því enn með fullt hús stiga á toppi Meistaradeildar Evrópu.

Liver­pool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst

Gott gengi lærisveina Arne Slot hjá Liverpool virðist engan endi ætla að taka. Í kvöld vann Rauði herinn sannfærandi 2-0 sigur á Real Madríd þar sem bæði liðin brenndu af vítaspyrnu. Gestirnir frá Madríd eru hins vegar í vondum málum eftir þrjú töp í fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×