Veður

Hiti að sex stigum

Atli Ísleifsson skrifar
Það mun hvessa og bæta í skúrir á á morgun.
Það mun hvessa og bæta í skúrir á á morgun. Vísir/Einar

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, í dag. Spáð er dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt að kalla á austanverðu landinu.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði almennt á bilinu tvö til sex stig, en nálægt frostmarki austantil fram eftir degi.

„Hvessir og bætir í skúrir á morgun, 10-18 m/s um hádegi. Áfram þurrt austanlands. Hiti 2 til 6 stig. Vestlægari og kólnar með éljum norðvestantil um kvöldið.

Gengur í norðan og norðaustan 13-20 með sjókomu á Vestfjörðum aðfaranótt fimmtudags en dregur aðeins úr vindi þar í morgunsárið. Norðan og norðaustan 10-18 á fimmtudag. Snjókoma um mest allt land, en slydda í fyrstu suðaustanlands. Þurrt að mestu suðvestantil. Kólnar í veðri, frost 0 til 11 stig um kvöldið.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Á föstudag verður norðaustan 8-15 m/s og bjart með köflum, en hvassari með snjókomu suðaustantil. Kólnar enn með talsverðu frosti um mest allt land, einkum norðanlands.

Á laugardag og sunnudag er útlit fyrir að lægð á norðausturleið fari framhjá suðaustur af landinu en enn er óvíst hversu nærri landinu þessi lægð kemur. Ef leið hennar er meira til austurs, þá sleppum við við mestu ofankomuna, en ef leið hennar leitar meira til vesturs, þá má reikna með snjókomu og hvassviðri um mest allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×