Hamrarnir unnu ó­væntan sigur í norðrinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hart barist.
Hart barist. Carl Recine/Getty Images

West Ham United vann nokkuð óvæntan 2-0 útisigur á Newcastle United í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Eftir aðeins tíu mínútna leik kom Tomáš Souček gestunum úr Lundúnum yfir eftir sendingu bakvarðarins Emerson, staðan 0-1 í hálfleik.

Snemma í síðari hálfleik tvöfaldaði bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka forystu gestanna eftir sendingu Jarrod Bowen. Staðan orðin 0-2 og reyndust það lokatölur leiksins.

Sigurinn lyftir Hömrunum upp í 14. sæti með 15 stig að loknum 12 umferðum. Newcastle er í 10. sæti með 18 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira