Skoðun

Gervi­góð­mennska fyrir al­mannafé

Kári Allansson skrifar

Margir Íslendingar upplifa vanmátt gagnvart stjórnmálunum. Alveg sama hvað maður kýs þá verður útkoman alltaf miðjumoð sem enginn er ánægður með. Nefna má til dæmis stöðuna í vaxtamálum, húsnæðismálin, halla á ríkissjóði og miklar skuldir ríkisins, heilbrigðismálin, stöðu barna sem lent hafa utangarðs, menntamálin, stöðu aldraðra og öryrkja, orkumálin og fleira.

Í fyrsta lagi kaupa stjórnmálamenn sér vinsældir fyrir almannafé. Þeir ráða ekki við sig þegar kemur að ríkisútgjöldum með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu. Íslenskir kjósendur hafa tekið þátt í þessu með því að ásælast líka almannafé. Hver einasti sérhagsmunahópur fer á kreik fyrir kosningar og spyr stjórnmálamennina um hvernig skuli staðinn vörður um sérhagsmunina. Ef ekki verður róttæk hugarfarsbreyting þá mun ekkert breytast. Miðjumoðið heldur bara áfram með tilheyrandi verðmætasóun og spillingu. Þeir sem skynja þetta verða að kjósa breytingar. Annars breytist ekki neitt.

Í öðru lagi hefur hugsýki herjað á Vesturlönd. Hún nefnist pólitískur rétttrúnaður. Um er að ræða nýmarxíska gervigóðmennsku. Tilfinningarök og dyggðaflöggun „góða fólksins“ eru sett ofar öllu öðru. Helsta birtingarmynd gervigóðmennskunnar er algert óþol fyrir skoðunum sem passa ekki við rétttrúnaðinn ásamt gengdarlausri kröfu um ríkisafskipti, þ.e. valdbeitingu, á öllum sviðum. „Góða fólkið“ stundar góðmennsku sína einatt á kostnað annarra. Þeir sem vilja opin landamæri gætu prófað að spyrja sjálfa sig: Hvað er pláss fyrir marga hælisleitendur heima hjá mér? Þá kæmi líklega annað hljóð í strokkinn.

Hvað annað en hugsýki getur útskýrt: að Íslendingar setjist sjálfir á sakamannabekk í loftslagsmálum, til standi að selja orku úr landi um sæstreng, öfgafemínisma, að menn þurfi að sanna sakleysi sitt í fjölmiðlum, áherslu á að kenna börnum hinseginfræði á meðan kristinfræði er bönnuð, að ríkið segi einkaaðilum hvernig þeir megi merkja salerni, undirgefni stjórnmálamanna við alþjóðlegar stofnanir, að hælisleitendur fái betri þjónustu en hjálparþurfi Íslendingar og að tugum milljarða af almannafé sé eytt í vopnakaup, svo aðeins nokkur dæmi séu tekin?

Lýðræðisflokkurinn er eini flokkurinn sem þorir að taka á rót vandans og stinga á þeim kýlum sem þjakað hafa íslenskt samfélag of lengi. Þeir sem eru ekki sofandi verða að kjósa Lýðræðisflokkinn til að sporna við ásókn „góða fólksins“ í almannafé.

Gerum Ísland gott aftur!

Höfundur er í fyrsta sæti fyrir Lýðræðisflokkinn í Reykjavík suður.




Skoðun

Sjá meira


×