Viðskipti innlent

Kristján ráðinn til Advania

Atli Ísleifsson skrifar
Kristján Þorvaldsson.
Kristján Þorvaldsson. Advania

Kristján Þorvaldsson hefur tekið við hlutverki forstöðumanns veflausna hjá Sérlausnum Advania.

Í tilkynningu segir að Kristján hafi mikla reynslu úr upplýsingatækni. Hann sé með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá sama skóla. Auk þess sé hann vottaður IPMA verkefnastjóri á C stigi.

Kristján kemur til Advania frá Sjúkratryggingum þar sem hann starfaði sem sviðsstjóri Stafrænnar þróunar en áður starfaði hann sem upplýsingatæknistjóri hjá Lyfjastofnun. Kristján hefur einnig starfað hjá Marel, WOW Air og Orkuveitunni ásamt því að kenna verkefnastjórnun við Háskóla Íslands.

Veflausnir Advania bjóða heildstæða þjónustu í þróun og hönnum stafrænna lausna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Þar má nefna ráðgjöf, greiningu, hönnun og þróun með það að markmiði að aðstoða viðskiptavini í að ná árangri á sínu sviði. Meðal verkefna eru vefverslanir, applausnir og sérsniðnar lausnir sem einfalda ferla, bæta notendaupplifun og tryggja upplýsingaflæði,“ segir í tilkynningunni.

„Ég er afar spenntur fyrir nýja starfinu hjá Advania. Ég hef til margra ára verið ánægður viðskiptavinur fyrirtækisins og því er einstakt tækifæri að fá að ganga til liðs við einvala lið sérfræðinga sem á hverjum degi skapa mikið virði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Framundan eru risastór verkefni sem verður gaman að vinna með frábærum viðskiptavinum okkar,“ segir Kristján.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×