Skoðun

Viljum við góð lífs­gæði á Ís­landi?

Ingibergur Valgarðsson skrifar

Svarið við þessari spurningu er flestum augljóst: já, auðvitað viljum við það. En þegar við lítum nánar á stöðuna í dag, getum við þá sagt að lífsgæði okkar séu eins góð og þau gætu verið? Margir upplifa þvert á móti að þau séu skert vegna hárra vaxta, sívaxandi verðbólgu og húsnæðisvanda sem hefur verið landlægur í áratugi. Þetta eru flókin vandamál, en þau hafa þróast yfir langan tíma og nú virðast þau mynda ósnertanlegan hnút sem enginn stjórnmálamaður virðist geta leyst.

Húsnæðisvandi sem aldrei virðist leysast

Eitt augljósasta dæmið er byggingarskorturinn, sem hefur plagað landið frá fjármálahruninu 2008-2010. Af hverju hefur ekki tekist að leysa þennan vanda? Aðstæður á Íslandi gera byggingarframkvæmdir vissulega krefjandi, en hvers vegna eru þær svo dýrar og tímafrekar í samanburði við nágrannalönd okkar? Í Færeyjum sjáum við dæmi um hraða og skilvirka framkvæmd á innviðum, en hér virðast bæði framkvæmdir og stjórnsýslan draga lappirnar.

Þetta á einnig við um vegakerfið okkar. Þrátt fyrir harðbýlt veðurfar virðast staðlar sem notaðir eru í vega- og innviðagerð oft ekki henta íslenskum aðstæðum. Þessir þættir, sem ættu að vera leysanlegir með skynsamlegum aðgerðum, hafa orðið að langvarandi vandamálum vegna skorts á pólitískri getu og framsýni.

Vantraust á valdhafa

Íslensk stjórnmál hafa í langan tíma verið eins og hringekja þar sem sömu flokkarnir skiptast á völdum. Þrátt fyrir tíðar kosningar og loforð um breytingar virðist lítið breytast í raun. Kjósendur upplifa oft að þeir séu sviknir, þar sem stjórnmálamenn virðast ekki axla ábyrgð á eigin gjörðum.

Áberandi dæmi um þetta er mál Íslandsbanka. Ríkið seldi hluta eignar sinnar í bankanum á umdeildan hátt, þar sem faðir formanns Sjálfstæðisflokksins var meðal kaupanda. Þrátt fyrir mikil mótmæli tóku stjórnvöld ekki ábyrgð, og enginn axlaði afleiðingar málsins. Hvers vegna var Landsdómur ekki nýttur í þessu tilviki? Sama má segja um atburðarásina sem fylgdi þegar sami formaður tók við embætti forsætisráðherra, þrátt fyrir mikla andstöðu almennings. Þetta eru dæmi sem styrkja upplifun kjósenda af skeytingarleysi valdhafa.

Hvað er til ráða?

Ef við viljum góð lífsgæði á Íslandi er ljóst að breytinga er þörf. Það kallar á nýja hugsun og nýtt fólk í stjórnmálum – einstaklinga og flokka sem bera raunverulega ábyrgð gagnvart almenningi og eru óháðir sérhagsmunum. Það eru til flokkar sem leggja áherslu á þessi gildi, en breytingar byrja á kjósendum. Við þurfum að hugsa vel um hvaða einstaklinga og flokka við setjum í ábyrgðarstöður.

Lausnin liggur í lýðræðinu:

  1. Gefum nýjum flokkum og ferskum hugmyndum tækifæri.
  2. Veljum einstaklinga sem eru reiðubúnir að axla ábyrgð og starfa í þágu almennings.
  3. Höfnum þeim sem hafa sýnt vanhæfni til að leysa þau vandamál sem hafa hrjáð okkur árum saman.

Tími til breytinga

Næstu kosningar eru mikilvægasta tækifæri okkar til að móta framtíðina. Hugsaðu vel um hverja þú kýst til áhrifa. Viljum við góð lífsgæði á Íslandi? Ef svarið er já, þá þurfum við að kjósa með breytingar í huga. Við getum ekki haldið áfram á sömu braut og látið vanhæfa stjórnmálamenn stjórna framtíð okkar. Nú er tíminn til að taka málin í eigin hendur og gera raunverulegar breytingar.

Höfundur skipar fjórða sæti í Norðvesturkjördæmi fyrir Lýðræðisflokkurinn.




Skoðun

Sjá meira


×