Lífið

Stjörnulífið: „Það er gott að vera ekki í felu­leik og flótta frá sjálfum sér“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
FotoJeADadt

Nístandi kuldi og tímamót einkenndu liðna viku. Stjörnur landsins gerðu sér dagamun og skemmtu sér meðal annars á tónleikum, í afmælum eða áttu notaleg stund í faðmi fjölskyldu og vina.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Þrítug og glæsileg

Magnea Björg Jónsdóttir raunveruleikstjarna fagnaði þrítugsafmæli sínu með pompi og prakt um helgina.

Ár edrú

Raunveruleikastjarnan Patrik Jaime fagnaði eins árs edrú afmæli.

Lífið hjá Laufey

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir birti myndir úr daglegu lífi.

Lífsins lukkupottur

Kolbrún Pálína Helgadóttir segist þakklát fyrir fólkið í kringum sig.

Tvær stórstjörnur

Tónlistarkonan Ragga Gísla verður leynigestur á tónleikum Bríetar 

Djamm-Gugga

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, skellti sér út á lífið um helgina.

Gleraugna-gægir

Tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð eða GDRN kíkti á sjálfa sig í glugganum hjá gleraugnaversluninni Sjáðu.

Loksins heim

Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech eignuðust dreng í vikunni. Mæðginin eru loksins farin heim af spítalanum til að hitta stóru systur.

Teboð í Gamlabíói

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir áhrifavaldur héldu Teboð í Gamla bíói.

Þakkargjörðin á næsta leiti

Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran telur niður dagana í þakkargjörðarhátíðina og deilir myndum af ljúffengum hátíðarmat.

IceGusy snýr aftur

Rúrik Gíslason fyrirsæta og athafnamaður telur niður dagana í þáttaröð tvö af IceGuys.

Pabbastelpur

Móeiður Lárusdóttir, athafnakona og eiginkona knattspyrnumannsins Harðar Björgvins Magnússonar, birti fallegar myndir af dætrum þeirra tveimur sem virðast vera miklar pabbastelpur.

Þriggja mánaða brúðkaupsafmæli

Fanney Ingarsdóttir og Teitur Páll Reynisson fögnuðu þriggja mánaða brúðkaupsafmæli um helgina.

Það gerði áhrifavaldurinn Rakel Orradóttir og Rannver Sigurjónsson kírópraktor sömuleiðis.

Feðgar á búðarrölti

Bubbi Morthens fór með syni sínum í verslunarleiðangur.

Heimakær í Skotlandi

Annie Mist Þórisdóttir Crossfit-stjarna er orðin heimakær í Skotlandi.

Átta ár edrú

Söngkonan og rithöfundurinn Sólborg Guðbrandsdóttir fagnaði átta árum áfengis í vikunni.

„Það er gott að vera ekki í feluleik og flótta frá sjálfum sér. Það vitum við Dagur frændi minn, því þannig styrkist maður dag frá degi. Lífið er fallegt og erfitt og alls konar og þannig má það líka bara vera,“ skrifar Sólborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×