Fótbolti

Tvö lið með fullt hús stiga í Sambandsdeildinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Legia Warsaw vann 4-0 stórsigur gegn Dinamo Minsk og tryggði sér toppsætið.
Legia Warsaw vann 4-0 stórsigur gegn Dinamo Minsk og tryggði sér toppsætið. Foto Olimpik/NurPhoto via Getty Images

Tvö lið, Legia Warsaw og Rapid Wien, eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í Sambandsdeild Evrópu. Shamrock Rovers fylgir þeim eftir í þriðja sætinu. 

Víkingur spilaði fyrsta leik þriðju umferðarinnar og vann 2-0 gegn Borac á Kópavogsvelli fyrr í dag.

Sjö leikir fóru svo fram síðdegis en aðrir tíu leikir eru á dagskrá í kvöld.

Fullt hús stiga

Legia Warsaw vann 4-0 stórsigur gegn Dinamo Minsk, Luquinhas og Marc Gual settu sitt hvor tvö mörkin. Sigurinn tryggði Legia toppsætið en liðið hefur unnið alla þrjá leikina og ekki enn fengið á sig mark.

Rapid Wien er í öðru sætinu eftir 3-0 útivallarsigur Petrocub. Bendegúz Bolla braut ísinn snemma, Guido Burgstaller bætti svo tveimur mörkum við í seinni hálfleik. Rapid hefur einnig unnið fyrstu þrjá leikina, skorað sex mörk og aðeins fengið á sig eitt.

Íslandsvinir í þriðja sæti

Þau tvö eru einu liðin með fullt hús stiga. Á eftir þeim er Shamrock Rovers, sem hefur spilað við Breiðablik og Víking í undankeppninni undanfarin tvö ár.

Shamrock lenti undir gegn TNS í dag en vann 2-1 endurkomusigur þökk sé mörkum Johnny Kenny og Dylan Watts. Shamrock er nú með sjö stig eftir þrjá leiki.

Taflan tekur líklega breytingum

Chelsea, Fiorentina, Vitória, Hearts, Jagiellonia og Hedenheim unnu öll sína fyrstu tvo leiki og geta tekið toppsætið með sigri í kvöld.

Andri Lucas í fremstu línu Gent

Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliðinu hjá Gent, sem vann 1-0 gegn Omonia (kýpverska liðinu sem vann Víking 4-0 í fyrstu umferð). Hann var tekinn af velli eftir 75 mínútur. Omri Gandelman skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Gent er með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×