Aftur skutu Skytturnar púður­skotum á Ítalíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
System.Threading.Tasks.Task`1[Microsoft.AspNetCore.Html.IHtmlContent]

Inter Milan lagði Arsenal 1-0 í einum af stórleikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Skytturnar hans Mikel Arteta hafa nú farið tvívegis til Ítalíu á leiktíðinni og mistekist að skora í báðum leikjum sínum þar.

Yann Sommar hélt marki sínu hreinu.EPA-EFE/NICOLA MARFISI

Arsenal hóf tímabilið í Meistaradeildinni með markalausu jafntefli gegn Atalanta. Síðan þá hafði liðið unnið tvo leiki í röð, þar á meðal gegn París Saint-Germain, áður en kom að heimsókn liðsins til Mílanó í kvöld.

Leikurinn var opnari en lokatölurnar gefa til kynna en aðeins eitt mark var skorað. Það kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir að hendi var dæmd á Mikel Merino. Hinn tyrkneski Hakan Çalhanoğlu fór á punktinn og ólíkt því sem geðrist á Laugardalsvelli þá rann hann ekki og spyrnan söng í netinu.

Staðan 1-0 í hálfleik og það reyndust lokatölur leiksins þar sem Arsenal komst ekkert áleiðis gegn sterkri vörn heimamanna. Eftir sigur kvöldsins er Inter með 10 stig í 5. sæti á meðan Arsenal er með sjö stig í 12. sæti.

Miðstöðin:

Leikir dagsins